GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Young golfer standing on a course, arms spread with a Union Jack flag, next to a tall trophy on the grass.
#image_title
Auglýsing

Óliver Elí Björnsson, landsliðskylfingur úr Golfklúbbnum Keili, vann í dag magnaðan sigur á Opna breska áhugamannamóti pilta, The R&A Boys’ Amateur Championship. Hann hafði betur gegn Svíanum Ludwig Libera í 37 holu úrslitaleik á Gailes Links í Skotlandi.

Jafnt eftir fyrri 18 holurnar

Úrslitaleikurinn var jafn og spennandi frá fyrstu holu. Óliver byrjaði af krafti og vann fyrstu holuna með fugli en Libera jafnaði leikinn á fimmtu holu.

Óliver komst aftur eina holu upp með pari á áttundu holu en Svíinn svaraði á tíundu og elleftu holu og náði sjálfur forystunni. Óliver lét það ekki slá sig út af laginu. Hann vann tólftu holuna og jafnaði leikinn áður en fugl á þeirri þrettándu kom honum aftur eina holu upp.

Libera vann sextándu holuna og staðan var því jöfn eftir fyrri 18 holur úrslitaleiksins. Hvorugur kylfingur hafði komist meira en eina holu yfir og ljóst var að úrslitin myndu ráðast á síðari 18 holunum.

Eftir hlé hélt spennan áfram og lítið skildi kylfingana að. Óliver sýndi enn á ný þá miklu yfirvegun og baráttu sem hefur einkennt frammistöðu hans alla vikuna. Eftir tólf holur seinni hringsins var Svíinn þrjár holur upp. Þegar mest reyndi hélt okkar maður haus, jafnaði leikinn á 17. holunni og sigraði á fyrstu holu bráðabanans.

Óliver hóf mótið í 36 holu höggleik þar sem keppt var um 64 sæti í holukeppninni. Hann lék hringina á 76 og 66 höggum og tryggði sér sæti í útsláttarkeppninni með frábærum lokahring.

Í 64 manna úrslitum vann hann Skotann Aidan Lawson 3/2 og lagði síðan Írann Adam Fahey í 32 manna úrslitum.

Í 16 manna úrslitum vann Óliver eftir ótrúlegan leik gegn Frakkanum Jayson Piermont. Hann var þrjár holur upp eftir sex holur en tveimur holum undir þegar aðeins tvær voru eftir. Óliver setti þá niður um 13 metra pútt á átjándu holunni til að jafna leikinn og tryggði sér sigur á tuttugustu holu.

Í átta manna úrslitum hafði hann betur gegn Dananum Christian Photin Hansen og í undanúrslitunum vann hann Tao Pemerika frá Frakklandi, Evrópumeistara unglinga, og tryggði sér þar með sæti í úrslitaleiknum gegn Libera.

Sögulegur sigur og stór tækifæri fram undan

The Boys’ Amateur Championship er eitt sterkasta unglingamót Evrópu og eitt elsta golfmót heims, en það var nú haldið í 106. sinn. Á meðal fyrrverandi sigurvegara eru stórstjörnur á borð við José María Olazábal, Sergio García og Matthew Fitzpatrick.

Með sigrinum öðlast Óliver þátttökurétt á Opna breska áhugamannamótinu í karlaflokki og í lokaúrtökumótinu fyrir Opna breska meistaramótið, The Open, á næsta ári.

Sigurinn mun einnig skila honum miklu stökki á heimslista áhugamanna þegar nýr listi verður birtur á miðvikudag.

Magnaðri viku í Skotlandi lýkur því með sögulegum íslenskum sigri og besta árangri íslensks kylfings í flokki 18 ára og yngri frá upphafi.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ