/

Deildu:

Séð yfiir Kiðjabergsvöll. Mynd/Long.
Auglýsing

Golfklúbbur Kiðjabergs óskar eftir að ráða aðstoðarvallarstjóra.

Hlutverk aðstoðarvallarstjóra Kiðjabergs (GKB) er að aðstoða við umsjón með umhirðu, viðhaldi á golfvelli og öðru umráðasvæði klúbbsins sem og daglegu eftirliti. Tryggir að svæði GKB sé alltaf eins og best verður á kosið og framfylgir faglegum vinnubrögðum starfsmanna.

Við leitum eftir einstakling sem hefur ástríðu metnað í starfi

Helstu verkefni:

  • Aðstoðar við verkstjórn vegna viðhald
  • Almenn innkaup
  • Undirbýr Kiðjabergsvöll fyrir mótahald
  • Aðstoðar við skipulagningu verka á hverjum degi
  • Tryggir að snyrtimennska sé í hávegum höfð í verkum og frágangi þeirra.

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Golfvallarfræðimenntun eða góð reynsla af vinnu á golfvelli
  • Vinnuvélaréttindi
  • Þjónustulund og góð hæfni í mannlegum samskiptum

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsóknir sendist á gkb@gkb.is

Nánari upplýsingar í síma 486-4495. Um er að ræða tímabundna stöðu frá og með byrjun júní. Lengd ráðningar er til enda ágúst með möguleika á framlengingu um mánuð

Umsóknarfrestur er til og með 14. júní n.k.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.

Öllum umsóknum verður svarað.

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ