Auglýsing

Golfklúbbur Hornafjarðar fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á ársþingi Ungmennasambandsins Úlfljóts sem fram fór fimmtudaginn 7. apríl síðastliðinn á Höfn í Hornafirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍSÍ.

Svo skemmtilega vildi til að þingið fór einmitt fram í Golfskálanum á Hornafirði.

Það var Andri Stefánsson framkvæmdastjóri ÍSÍ sem afhenti Gesti Halldórssyni formanni golfklúbbsins viðurkenninguna á þinginu. Á myndinni eru þeir Andri og Gestur.

„Það var mjög gagnlegt að fara í gegnum þetta ferli því með þessu er hægt að skerpa á ýmsu og svo er margt sem við sjáum að huga þarf að og koma inn í starfið. Það þýðir að við þurfum að sinna verkefnum okkar á skipulagðari hátt“ sagði Halldóra Guðmundsdóttir stjórnarmaður í Golfklúbbi Hornafjarðar af þessu tilefni.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ