Fyrstu umferð af alls tveimur í höggleiknum á Opna breska áhugamannameistaramótinu í karla – og kvennaflokki var felld niður vegna veðurs. Keppni var frestað í tvígang í gær vegna veðurs og ákvað mótsstjórn að fella niður fyrstu umferðina. Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, var á meðal efstu kylfinga í kvennaflokknum á +2 eftir 17 holur og Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, var um miðjan keppnishóp í karlaflokknum.
Keppendur fá því aðeins einn keppnisdag í höggleikskeppninni þar sem keppt er um að komast í hóp 64 efstu sem fá tækifæri til þess að keppa í holukeppninni sem tekur við af höggleikskeppninni.
Eins og sjá má á myndunum frá Gregor Brodie afreksstjóra GSÍ voru aðstæður afar krefjandi.
Mótin eru í hæsta styrkleikaflokki áhugakylfinga á heimsvísu og eiga sér bæði langa sögu.
Hulda Clara keppir á West Lancashire vellinum í nágrenni við Liverpool dagana 25.-29. ágúst en Dagbjartur keppir á Royal Birkdale vellinum dagana 25.-30. ágúst.
Opna breska meistaramótið í karlaflokki, The Open, hefur m.a. verið haldið 10 sinnum á Royal Birkdale vellinum.
Að forkeppninni lokinni komast 64 efstu inn í holukeppnina. Í þeirri keppni eru leiknar tvær umferðir á dag þar til að úrslitin ráðast í úrslitaleik um sigurinn.
Það er til mikils að vinna á þessum mótum. Sigurvegarinn á Opna breska áhugamannamótinu í karlaflokki fær m.a. boð um að taka þátt á atvinnumótum á borð við Opna breska meistaramótið og Masters mótinu.
Siguvegarinn hjá konunum á Opna breska áhugamannamótinu fær einnig boð um að taka þátt á risamótum á borð við AIG meistaramótið, Opna bandaríska meistaramótið, Evian meistaramótið og Augusta National áhugamannamótið.
Á Royal Birkdale vellinum er Dagbjartur á meðal 120 keppenda en á West Lancashire vellinum er Hulda Clara á meðal 100 keppenda sem taka þátt.
Staða, úrslit og rástímar hjá Dagbjarti – smelltu hér:
Staða, úrslit og rástímar hjá Huldu Clöru – smelltu hér:
![118541318_306453694028551_2795491937861651621_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118541318_306453694028551_2795491937861651621_n-768x1024.jpg)
![118403946_922809008201503_5997657259562640343_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118403946_922809008201503_5997657259562640343_n-1024x768.jpg)
![118518657_1566777433501484_7182196744762660653_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118518657_1566777433501484_7182196744762660653_n-768x1024.jpg)
![118463661_390117241972524_3149499771706617499_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118463661_390117241972524_3149499771706617499_n-1024x768.jpg)
![118393305_339605960498172_862141200520422747_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118393305_339605960498172_862141200520422747_n-768x1024.jpg)
![118452865_345861006590512_6119126843175184441_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118452865_345861006590512_6119126843175184441_n-1024x768.jpg)
![118461247_415972176048909_6593438612587638486_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118461247_415972176048909_6593438612587638486_n-1024x768.jpg)
![118518047_1228268140870403_3785269676505668529_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118518047_1228268140870403_3785269676505668529_n-1024x768.jpg)
![118452865_400122614345936_1955831584620504113_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118452865_400122614345936_1955831584620504113_n-768x1024.jpg)
![118531583_1191960371169314_4157991326989653494_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118531583_1191960371169314_4157991326989653494_n-768x1024.jpg)
![118480308_2626470567668524_3781424475659715519_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118480308_2626470567668524_3781424475659715519_n-768x1024.jpg)
![118532061_960414944426238_6783492072957728004_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118532061_960414944426238_6783492072957728004_n-1024x768.jpg)
![118599821_733052393926580_8926412260243357563_n - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118599821_733052393926580_8926412260243357563_n-1024x768.jpg)
![118452868_638379413449208_8204520050177520429_n-2 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118452868_638379413449208_8204520050177520429_n-2-1024x768.jpg)
![118525966_674032626534152_5653961705455365857_n-1 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118525966_674032626534152_5653961705455365857_n-1-768x1024.jpg)
![118515185_2680915522146968_2616948874025831928_n-1 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118515185_2680915522146968_2616948874025831928_n-1-1024x768.jpg)
![118442374_605854356790219_4955953513215721_n-1 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118442374_605854356790219_4955953513215721_n-1-1024x768.jpg)
![118578972_354552872247587_1748283155987309288_n-1 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118578972_354552872247587_1748283155987309288_n-1-1024x768.jpg)
![118307597_3576995508999093_2938846922897276023_n-1 - Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/08/118307597_3576995508999093_2938846922897276023_n-1-1024x768.jpg)