Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, keppa á Opna breska áhugamannameistaramótinu sem fram fer næstu daga.

Mótin eru í hæsta styrkleikaflokki áhugakylfinga á heimsvísu og eiga sér bæði langa sögu.

Hulda Clara keppir á West Lancashire vellinum í nágrenni við Liverpool dagana 25.-29. ágúst en Dagbjartur keppir á Royal Birkdale vellinum dagana 25.-30. ágúst.

Opna breska meistaramótið í karlaflokki, The Open, hefur m.a. verið haldið 10 sinnum á Royal Birkdale vellinum.

Á báðum mótunum er fyrst keppt í höggleik fyrstu tvo keppnisdagana. Að forkeppninni lokinni komast 64 efstu inn í holukeppnina. Í þeirri keppni eru leiknar tvær umferðir á dag þar til að úrslitin ráðast í úrslitaleik um sigurinn.

Það er til mikils að vinna á þessum mótum. Sigurvegarinn á Opna breska áhugamannamótinu í karlaflokki fær m.a. boð um að taka þátt á atvinnumótum á borð við Opna breska meistaramótið og Masters mótinu.

Siguvegarinn hjá konunum á Opna breska áhugamannamótinu fær einnig boð um að taka þátt á risamótum á borð við AIG meistaramótið, Opna bandaríska meistaramótið, Evian meistaramótið og Augusta National áhugamannamótið.

Á Royal Birkdale vellinum er Dagbjartur á meðal 120 keppenda en á West Lancashire vellinum er Hulda Clara á meðal 100 keppenda sem taka þátt.

Staða, úrslit og rástímar hjá Dagbjarti – smelltu hér:

Staða, úrslit og rástímar hjá Huldu Clöru – smelltu hér:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ