Golfsýningin 2019 fór vel af stað í íþróttahúsinu Smáranum. Fjölmargir lögðu leið sína á sýninguna um leið og húsið var opnað kl. 10.00 í morgun.
GSÍ og PGA verða á Golfsýningin 2019 um helgina en ppið verður báða dagana frá 10-16 og er aðgangur ókeypis.
PGA á Íslandi ásamt GSÍ standa fyrir viðburðum og leikjum alla helgina.
Golfkennarar verða á svæðinu auk þess sem dómarar kynna breytta golfreglur og auðvita verður boðið upp á SNAG golf fyrir yngstu kynslóðina.
Enginn kylfingur ætti að láta sýninguna fram hjá sér fara og munið að frítt er á sýninguna.
Hægt er að kynna sér sýninguna betur og hvaða sýnendur verða á svæðinu inni á fésbókarsíðunni Golfsýningin 2019.
Hér er myndasyrpa frá því í morgun þegar Golfsýningin 2019 opnaði.