/

Deildu:

Auglýsing

Bakkakotsvöllur hefur í gegnum tíðina alið af sér gríðarlega marga nýliða í golfíþróttinni. Margir hafa slegið sín fyrstu högg þar og fengið áhuga á íþróttinni í frábæru umhverfi í Mosfellsdalnum. 

Bakkakotsvöllur er einn af tveimur völlum sem Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur til umráða. „Stóri völlurinn“ er Hlíðavöllur sem er staðsettur í í Mosfellsbæ og er glæsilegur 18 holu golfvöllur við ströndina með óviðjafnanlegu útsýni yfir Faxaflóann.

Bakkakotsvöllur er í Mosfellsdal. Þar er að finna skemmtilegan 9 holu golfvöll í yndislegri náttúru. Vallarsvæðin sem GM hefur til umráða eru ólík en saman mynda þau skemmtilega heild. Reynt er að tryggja að vellirnir loki aldrei á sama tíma vegna mótahalds eða móttöku stærri hópa. Það þýðir að félagsmenn í GM eiga alltaf að eiga kost á að komast í golf þegar þeim hentar.

Einkenni Bakkakotsvallar er fallegt umhverfi, stuttar brautir og mikill trjágróður. Í gegnum tíðina hefur mikið verið gróðursett á svæðinu og er Bakkakotsvöllur í sannkallaðri sveitasælu. Völlurinn er stutt frá ys og þys borgarinnar. Bakkakot er 2.051 metri og 9 holur af gulum teigum eða 4.102 metrar á 18 holum. 

Það er þó ekki svo að auðvelt sé að skora völlinn vel af því hann er stuttur. Beita þarf mismunandi höggum og skipta staðsetningar miklu máli til að ná góðu skori. Flatir á vellinum teljast vera í minni kantinum og því þarf nákvæm högg til að koma sér í fuglafæri.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ