Auglýsing

Englendingar fögnuðu sigri á Evrópumóti kvennalandsliða 2022 sem lauk í gær á Conwy vellinum í Wales. England og Ítalía áttust við í úrslitaleiknum þar sem að Englendingar höfðu betur í spennandi viðureign.

Þetta er annað árið í röð sem England fagnar þessum titli. Spánverjar enduðu í þriðja sæti og Svíar í því fjórða.

Íslenska liðið endaði í 16. sæti þar sem að liðið lék gegn Hollandi, Slóvakíu og Finnlandi í B-riðlinum. Nánar um úrslit leikja Íslands hér fyrir neðan.

Lokastaðan á EM kvenna:

1. England
2. Ítalía
3. Spánn
4. Svíþjóð
5. Danmörk
6. Skotland
7. Þýskaland
8. Wales
9. Frakkland
10. Írland
11. Austurríki
12. Holland
13. Sviss
14. Tékkland
15. Finnland
16. Ísland
17. Belgía
18. Slóvenía
19. Pólland
20. Slóvakía

Evrópumeistaralið Englands. Mynd/EGA


Smelltu hér fyrir leikmannalista, rástíma, stöðu og úrslit á EM kvenna:

Keppnisfyrirkomulagið var með þeim hætti að fyrstu tvo keppnisdagana var leikinn höggleikur þar sem að fimm lægstu skorin hjá hverju liði töldu. Liðunum var raðað upp í riðla eftir árangri í höggleiknum, átta efstu liðin léku í holukeppni í A-riðli um Evrópumeistartitilinn og önnur lið léku um sætin þar fyrir neðan. Í B-riðli var leikið um sæti 9.-16 og í C-riðli um sætin þar fyrir neðan. 

Í holukeppninni voru leiknar tvær umferðir á dag. Í fyrri umferðinni voru leiknir fjórmenningsleikir (Foursome)  þar sem tveir leikmenn leika gegn tveimur öðrum leikmönnum og hvort lið leikur einum bolta. Eftir hádegi voru leiknir tvímenningsleikir, þar sem einn leikmaður leikur gegn öðrum leikmanni.

Efri röð frá vinstri: Árný Árnadóttir sjúkraþjálfari, Saga Traustadóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Heiðar Davíð Bragason liðsstjóri. Neðri röð frá vinstri: Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Mynd/EGA.

Svíar og Englendingar hafa verið sigursælustu þjóðirnar á EM kvenna undanfarin sex ár. Svíar eru ríkjandi Evrópumeistarar eftir að hafa sigrað England í úrslitum á Royal County Down vellinum í fyrra. Þetta var þriðji sigur Svía í röð en England hóf þriggja ára sigurgöngu sína á EM þegar mótið fór fram á Urriðavelli á Íslandi árið 2016.  

Ísland tapaði 4 1/2 – 1/2 gegn Tékklandi í 2. umferð holukeppninnar. Hulda Clara Gestsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir töpuðu fjórmenningsleiknum 5/4. Heiðrún Anna Hlynsdóttir gerði jafntefli í sinni viðureign í tvímenningsleikjunum en aðrir leikir töpuðust. Andrea Bergsdóttir tapaði 2/1, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir tapaði 3/1 og Saga Traustadóttir tapaði 5/4.

Í lokaumferðinni lék Ísland gegn Finnland og var sá leikur jafn og spennandi. Finnar höfðu betur 3/2. Saga Traustadóttir og Hulda Clara Gestsdóttir töpuðu fjórmennningsleiknum 4/2, Andrea Bergsdóttir og Heiðrún Anna Hlynsdóttir unnu tvímenningsleiki sína, Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir töpuðu sínum tvímenningsleikjum.

3. keppnisdagur.

Ísland mætti liði Hollands í 1. umferð holukeppninnar í B-riðli en Holland endaði í 9. sæti eftir höggleikinn og lék því gegn liðinu sem endaði í 16. sæti.

Hulda Clara Gestsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir töpuðu í fjórmenningsleiknum fyrir hádegi, 3/1. Andrea Bergsdóttir sigraði 4/3 í tvímenningsleiknum sínum. Saga Traustadóttir tapaði 3/2. Heiðrún Anna Hlynsdóttir tapaði 4/1 og Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir tapaði 3/2. Lokatölur 4-1 fyrir Holland.

Í næstu umferð leikur Ísland gegn liði Tékklands sem tapaði í dag Frökkum. Ísland á enn möguleika á að ná 13. sætinu – en til þess þarf liðið að sigra í báðum viðureignum sínum sem eru framundan.

2. keppnisdagur.

Íslenska liðið endaði í 15. sæti af alls 20 liðum og leikir því um sæti 9-16.

England, Danmörk, Þýskaland, Skotland, Svíþjóð, Ítalía, Spánn og Wales keppa um Evrópumeistaratitlinn í A-riðli og sæti nr. 1-8.

Austurríki, Holland, Frakkland, Sviss, Írland, Tékkland, Ísland og Finnland leika um sæti nr. 9-16. Holland og Ísland mætast í 1. umferð holukeppninnar í B-riðli.

Andrea Bergsdóttir lék samtals á 156 höggum eða +10 (81-75) og endaði í jöfn 43. sæti í einstaklingskeppninni.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir lék samtals á 156 höggum eða +10 (74-82) og endaði jöfn í 43. sæti í einstaklingskeppninni.

Saga Traustadóttir lék samtals á 158 höggum eða +12 (76-82) og endaði jöfn í 62. sæti í einstaklingskeppninni.

Hulda Clara Gestsdóttir lék samtals á 160 höggum eða +14 (78-82) og endaði jöfn í 76. sæti í einstaklingskeppninni.

Heiðrún Anna Hlynsdóttir lék samtals á 161 höggi eða +14 (85-76) og endaði jöfn í 86. sæti í einstaklingskeppninni.

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir lék samtals á 162 höggum eða +16 (81-81) og endaði jöfn í 88. sæti í einstaklingskeppninni.

1. keppnisdagur.

Íslenska liðið er í 16. sæti af alls 20 liðum eftir 1. keppnisdaginn á +25 höggum yfir pari samtals. Þýskaland, England og Svíþjóð eru efst og jöfn á +7 samtals. Það eru 9 högg í 8. sætið og sæti í A-riðli hjá íslenska liðinu.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, nýliðinn í kvennalandsliðinu, lék best í dag af íslenska liðinu eða á 74 höggum +1 en Perla Sól er aðeins 15 ára og verður 16 ára í haust. Hún gæti verið á meðal keppenda á Evrópumóti stúlknalandsliða sem fram fer á Urriðavelli þessa dagana.

Saga Traustadóttir lék á 76 höggum eða +3 og er hún í 30. sæti eftir fyrri höggleiksdaginn.

Hulda Clara Gestsdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, er í 62. sæti á +5 eða 78 höggum.

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir og Andrea Bergsdóttir, eru báðar í 98. sæti, á +8 samtals eða 81 höggi.

Heiðrún Anna Hlynsdóttir, lék á +12 eða 85 höggum, en skor hennar taldi ekki í þessari umferð – en Heiðrún er í 109. sæti.

Efri röð frá vinstri: Árný Árnadóttir sjúkraþjálfari, Saga Traustadóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Heiðar Davíð Bragason liðsstjóri. Neðri röð frá vinstri: Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Mynd/EGA.
Heiðar Davíð Bragason liðsstjóri, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Saga Traustadóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Á myndina vantar Andreu Bergsdóttur. Mynd/seth@golf.is

Íslenska kvennalandsliðið er þannig skipað:  Heiðar Davíð Bragason liðsstjóri, Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, Saga Traustadóttir, Hulda Clara Gestsdóttir, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Á myndina vantar Andreu Bergsdóttur.  Mynd/seth@golf.is

Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Mynd/seth@golf.is .
Hulda Clara Gestsdóttir. M.ynd/seth@golf.is
Saga Traustadóttir. Mynd/seth@golf.is.
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir. Mynd/seth@golf.is.
Heiðrún Anna Hlynsdóttir. Mynd/seth@golf.is.
Heiðar Davíð Bragason. Mynd/seth@golf.is.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ