Sigursveinn Þórðarson formaður GV og Elsa Valgeirsdóttir.
Auglýsing

Elsa Valgeirsdóttir var heiðruð á aðalfundi Golfklúbbs Vestmannaeyja sem fram fór nýverið. Elsa hefur verið framkvæmdastjóri klúbbsins undanfarin 23 ár en hefur látið af störfum.
Karl Haraldsson hefur verið ráðinn í hennar stað. Í tilkynningu á heimasíðu GV segir:

„Elsa hefur unnið ótrúlegt starf fyrir klúbbinn. Hún hefur gengið í öll störf innan félagsins. Elsa hefur verið driffjöður í uppbyggingu og rekstri félagsins undanfarna þrjá áratugi og er félagið lánsamt að hafa fengið að njóta krafta hennar allan þennan tíma.“

Elsa var heiðruð af ÍBV héraðsambandi fyrir störf sín og fékk hún gullmerki félagsins.

Golfklúbbur Vestmannaeyja vill koma á framfæri þakklæti til Elsu fyrir óeigingjarnt starf fyrir félagið.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ