Auglýsing

Fimm íslenskir kylfingar tóku þátt á GolfStar Winter Series – Links mótinu sem fram fór
Empordá vellinum á Spáni dagana 16.-18. febrúar.

Mótið er á Nordic Golf League atvinnumótaröðinni – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Alls tóku 148 keppendur þátt.

Bjarki Pétursson, Hlynur Bergsson, Kristófer Orri Þórðarson og Ragnar Már Garðarsson voru á meðal keppenda. Þeir eru allir úr GKG en Hlynur er þessa stundina búsettur í Danmörku þar sem hann keppir fyrir golfklúbb í Óðinsvéum.

Aron Bergsson, sem skráður er í Hills golfklúbbinn í Svíþjóð, var fimmti íslenski keppandinn. Hann hefur keppt undir merkjum GKG á Íslandsmótinu í golfi – en hann hefur verið búsettur í Svíþjóð frá barnsaldri. Þess má geta að Aron er bróðir landsliðskonunnar, Andreu Bergsdóttur, sem tók risastökk á heimslista áhugakylfinga í síðustu viku.

Keppt var á tveimur völlum á Emordá, en vellirnar heita Forest og Links. Keppendur léku á báðum völlunum fyrstu tvo dagana en á þriðja keppnisdegi, lokahringum, var leikið á Links vellinum. Niðurskurður var eftir 2 hringi og komast 45 efstu áfram á lokahringinn.

Leikið verður á þessum golfvöllum á næsta móti sem hefst þriðjudaginn 20. febrúar og er keppnisfyrirkomulagið með sama hætti. Allir fimm íslensku keppendurnir taka þátt á því móti.

Smelltu hér fyrir lokastöðu og úrslit:

Bjarki Pétursson náði bestum árangri íslensku keppendana. Hann lék á 211 höggum eða -3 samtals (70-72-69) sem skilaði honum í 13. sæti.

Kristófer Orri Þórðarson lék á 214 höggum og var á pari samtals (70-73-71) og endaði hann í 24. sæti.

Ragnar Már Garðarsson lék á 220 höggum eða +6 yfir pari samtals (73-72-75) og endaði hann í 45. sæti.

Hlynur Bergsson lék fyrstu tvo hringina á 151 höggi eða 8 höggum yfir pari samtals, og komst hann ekki í gegnum niðurskurðinn.

Aron Bergsson lék á 216 höggum eða +2 samtals (70-74-72) og endaði hann í 32. sæti.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ