![- Golfsamband Íslands IMG_9458](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2016/05/IMG_9458-1024x576.jpg)
Andri Þór Björnsson úr GR sigraði nokkuð örugglega á Egils-Gullmótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk í dag á Strandarvelli á Hellu. Andri lék frábært golf þegar mest á reyndi og sigraði með sex högga mun. Andri lék hringina þrjá á 5 höggum undir pari vallar samtals og lokahringinn lék hann á -2. Ragnar Már Garðarsson úr GKG og Arnór Snær Guðmundsson úr Hamri á Dalvík enduð jafnir í 2.-3. sæti á +1 samtals.
Andri gerði fá mistök á hringnum í dag og fékk tvo skolla en hann fékk alls fimm fugla og þar af þrjá á síðustu fimm holunum.
Þetta er fjórði sigur Andra á Eimskipsmótaröðinni en hann sigraði á tveimur fyrstu mótunum í fyrra og hafði fyrir þá sigra landað einum sigri á mótaröð þeirra bestu.
„Ég ætla að byrja á því að þakka Golfklúbbi Reykjavíkur fyrir stuðninginn, þjálfurunum mínum Inga Rúnari Gíslasyni og Arnóri Finnbjörnssyni, þeir eiga mikið í þessu ásamt aðstoðarmanni mínum. Ég vil einnig þakka Golfklúbbnum á Hellu fyrir að standa vel að þessu móti ásamt Golfsambandi Íslands,“ sagði Andri Þór við golf.is á Strandarvelli á Hellu í dag.
![- Golfsamband Íslands Arnór Snær Guðmundsson, GHD.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/arnorsnaer1IMG_9280-1024x641.jpg)
![- Golfsamband Íslands Ragnar Már Garðarsson, GKG.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/ragnarmargardarssonIMG_9074-1024x968.jpg)
![- Golfsamband Íslands arnorsnaergudmundssonIMG_9065](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/arnorsnaergudmundssonIMG_9065-1024x867.jpg)
![- Golfsamband Íslands arnorsnaergudmundssonIMG_9068](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/arnorsnaergudmundssonIMG_9068-1024x796.jpg)
![- Golfsamband Íslands ingvarandriIMG_9098](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/ingvarandriIMG_9098.jpg)
![- Golfsamband Íslands Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/patrekurnordquistIMG_9202-1024x602.jpg)
![- Golfsamband Íslands Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, lék listir sínar á meðan hann beið eftir úrslitum mótsins.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/sigurdurarnarIMG_9204.jpg)
![- Golfsamband Íslands Sigurður Arnar Garðarsson, lék listir sínar á meðan hann beið eftir úrslitum mótsins.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/sigurdurarnar2IMG_9206-1024x971.jpg)
![- Golfsamband Íslands Patrekur Nordquist Ragnarsson, GR.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/patrekurnordquist2IMG_9213.jpg)
![- Golfsamband Íslands Helgi Dan Steinsson, GG.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/helgidansteinssonIMG_9221-1024x746.jpg)
![- Golfsamband Íslands Sturla Höskuldsson, GA.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/sturlahoskuldssonIMG_9229-1024x727.jpg)
![- Golfsamband Íslands Henning Darri Þórðarson, GK.](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/henningdarriIMG_9248-1024x619.jpg)