/

Deildu:

Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Gísli Sveinbergsson úr Golfklúbbnum Keili keppa á The Duke of York Young Champions Trophy. Leiknar verða 54 holur en mótið hefst á morgun 16. september og lýkur fimmtudaginn 18. september. Hægt verður að fylgjast með skori keppenda frá heimasíðu mótsins, hér.

Duke of York Young Champions Trophy er alþjóðleg golfmót fyrir stráka og stelpur sem eru 18 ára eða yngri og eru landsmeistararar sinna landa. Það er prins Andrew sem er gestgjafi eins og áður en mótið hefur verið haldið árlega síðan 2001. Að þessu sinni er leikið á hinum fræga golfvelli Royal Aberdeen en Opna Skoska meistaramótið sem er hluti af Evróputúrnum varl eikið a vellinum fyrr í sumar.

Mótið er Íslendingum að góðu kunnungt en á undanförnum árum höfum við átt góðu gengi að fagna. Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði mótið árið 2010 en þá var leikið á Royal St. George´s. Tveimur árum seinna árið 2012 sigraði Ragnar Már Garðarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar mótið eftir spennandi bráðabana á hinum fræga velli Royal Troon.

Heimasíða mótsins. https://www.doy-champions.com/index.asp

 

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ