Auglýsing

Fjórir íslenskir keppendur eru á meðal þátttakenda á Spirit International áhugamannamótinu sem fram fer í Bandaríkjunum. Um er ræða einstaklings – og liðakeppni þar sem að 20 þjóðir taka þátt.

Mótið í ár er það 10. í röðinni en keppendur sem hafa tekið þátt á þessu móti í gegnum tíðina hafa sigrað á samtals 650 atvinnumótum, þar af 25 risamótum, 16 mótum á PGA mótaröðinni, 25 mótum á Evrópumótaröð karla, 23 mótum á LPGA mótaröðinni og 21 móti á LET Evrópumótaröðinni.

Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson skipa íslenska liðið og Tómas Aðalsteinsson er liðsstjóri. Íslensku keppendurnir eru allir í námi í bandarískum háskólum og leika þar keppnisgolf með sínum skólaliðum. Tómas er þjálfari hjá bandarísku háskólaliði.

Fylgstu með gangi mála á Instagram síðu Team Iceland.

Smelltu hér fyrir skor og úrslit mótsins:

Smelltu hér fyrir upplýsingar um íslenska liðið:

Alls taka 20 þjóðir þátt: Argentína, Belgía, Kanada, Taiwan, Kólumbía, Danmörk, England, Finnland, Frakkland, Ísland, Írland, Ítalía, Mexíkó, Noregur, Skotland, Suður-Afríka, Spánn, Svíþjóð, Sviss, Bandaríkin,

Keppnin fer fram 4.-6. nóvember en leikið er á Whispering Pines Golf Club í Texas. Völlurinn er í 55. sæti yfir bestu golfvelli heims að mati Golf Digest.

Alls eru 80 keppendur og verða leiknar 54 holur. Keppt er í liðakeppni kvenna – og karla, einstaklingskeppni kvenna – og karla, og einnig er keppt í sameiginlegri alþjóðlegri liðakeppni. Keppt er í höggleik og veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum keppnisflokkum.

Hlynur Bergsson.
Dagbjartur Sigurbrandsson.
Hulda Clara Gestsdóttir.
Ragnhildur Kristinsdóttir.
Tómas Aðalsteinsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ