GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson lék frábært golf á fyrsta hring Royal Unibrew Championship mótsins í dag. Íslandsmeistarinn lék hringinn á fimm höggum undir pari og er jafn í öðru sæti mótsins, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Hlynur Bergsson og Sigurður Arnar Garðarsson eru einnig á meðal keppenda, en þeir komu báðir inn á þremur höggum undir pari. Saman eru þeir jafnir í tíunda sætinu eftir góða frammistöðu í dag.

Dagbjartur hóf hringinn af krafti og fékk tvo fugla á fyrstu fimm holunum. Að sextán holum loknum var Dagbjartur tvo undir pari. Síðustu tvær holur vallarins lék hann á þremur undir pari, en GR-ingurinn fylgdi frábærum erni eftir með fugli á lokaholunni. Dagbjartur situr höggi á eftir Norðmanninum Sebastian Eidsæther Syr, sem lék hring dagsins á sex höggum undir pari.

Promotional golf poster: two players, large blue 67 graphic, red -5 badge, and Dagbjartur Sigurbrandsson on the right; bottom reads 'ROYAL UNIBREW CHAMPIONSHIP'.
Frábær hringur Dagbjarts

Sigurður og Hlynur eru einnig í toppbaráttunni eftir flotta hringi í dag. Sigurður fékk fimm fugla og tvo skolla, en Hlynur fékk fjóra fugla og einn skolla. Það verður gaman að fylgjast með okkar kylfingum í mótinu næstu daga, en þeir hafa allir leikið vel á mótaröðinni á árinu.

Dagbjartur er í 31. sæti stigalistans, en hann hefur leikið í níu mótum. Hlynur situr rétt á eftir Íslandsmeistaranum, í 37. sætinu, eftir átta mót. Sigurður Arnar er í 47. sætinu en hefur þó einungis tekið þátt í þremur mótum. Öll voru þau á sama svæðinu í Póllandi í apríl, og varð Sigurður á meðal tíu efstu í tvígang.

Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ