Bein sjónvarpsútsending verður frá Íslandsmótinu í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur 6.-9. ágúst 2026. Útsendingin verður á RÚV líkt og undanfarin ár.
Samningur til tveggja ára um útsendingar frá Íslandsmótinu í golfi var undirritaður nýverið. Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ og Hilmar Björnsson íþróttastjóri RÚV undirrituðu samninginn.
Íslandsmótið í golfi hefur verið í beinni sjónvarpsútsendingu í rúmlega aldarfjórðung.
Fyrst var sýnt frá Íslandsmótinu í beinni útsendingu árið 1998 þegar mótið fór fram á Hólmsvelli í Leiru. Það er einsdæmi á heimsvísu að sýnt sé frá meistaramóti áhugakylfinga í beinni sjónvarpsútsendingu
Útsendingin í ágúst n.k. verður sú sautjánda hjá RÚV en fyrstu ellefu árin var sýnt frá mótinu á SÝN og einu sinni var sýnt frá mótinu á Stöð 2 sport.
Við tilefni á við þetta er vert að rifja upp högg frá útsendingunni árið 2025, sem er líklega það besta sem hefur verið slegið í beinni útsendingu Íslandsmótsins. Hér má nálgast myndband af því þegar Heiðar Snær fór holu í höggi í beinni.


