Auglýsing

Hér fyrir neðan er yfirlit yfir þær breytingar sem hafa verið gerðar á reglugerðum um Íslandsmót í flokkum eldri kylfinga.

Sérstök ákvæði um skráningarfrest í mót einstaklinga eru ekki lengur í reglugerðunum, heldur er skráningarfrestur ákveðinn af mótsstjórn hvers móts.

Vilji er til að lengja skráningarfresti í mót eins og hægt er, sérstaklega þau mót þar sem umfram skráning hefur verið síðustu ár. Að vita með lengri fyrirvara hvort keppendur komast í mótin auðveldar þeim undirbúning, s.s. vegna æfingahringja og gistingar. Á hinn bóginn getur þurft að taka tillit til fleiri atriða, til dæmis þegar staða á stigalistum ræður þátttökurétti. Því er talið einfaldast að mótsstjórn ákveði skráningarfrest hverju sinni.

Allar reglugerðir eru aðgengilegar á https://www.golf.is/reglugerdir/, en hér má finna samantekt á helstu breytingum 2022.

Þátttökuréttur í Íslandsmótum einstaklinga

Í reglugerðum um Íslandsmót einstaklinga kemur nú skýrar fram hvaða kröfur eru gerðar til þátttakenda varðandi aðild að íslenskum golfklúbbi og ríkisborgararétt eða þriggja ára samfellda búsetu á Íslandi. Kröfur þessar eru í samræmi við móta- og keppendareglur ÍSÍ.

Íslandsmót eldri kylfinga

Skilgreining á þátttökurétti í einstaka flokka hefur verið breytt þannig að hámarksforgjöf hefur verið sett fyrir hvern flokk og val þátttakenda umfram grunnfjölda í hverjum flokki ræðst af hve lág forgjöf viðkomandi er m.t.t. hámarksforgjafar. Hámarksforgjöf í hverjum flokki var ákveðin m.t.t. forgjafardreifingar bestu kylfinga landsins í flokknum.

Sami grunnfjöldi er skilgreindur fyrir hvern flokk þótt fjöldi kylfinga í hverjum flokki sé ólíkur. Því til grundvallar liggur sú staðreynd að um er að ræða fjögur aðskilin Íslandsmót hjá eldri kylfingum, jafnvel þótt þau séu haldin á sama velli á sama tíma. Talið er mikilvægt að gera þeim öllum jafn hátt undir höfði. Grunnfjöldinn samanstendur af u.þ.b. helmingi hámarksfjölda keppenda og laus sæti deilast síðan á flokkana eftir getustigi keppenda, m.t.t. hámarksgjafar.

Þetta fyrirkomulag er það sama og hefur verið við lýði í Íslandsmótinu í golfi undanfarin ár.

Reglugerð um Íslandsmót í golfi í flokkum eldri kylfinga

  1. Skráningarfrestur er nú ákveðinn af mótsstjórn (4. grein).

Sjá 1.1.

  1. Viðbót við 7. grein um að þátttakendur skuli vera félagar í íslenskum golfklúbbi.
    Sjá 1.2.
  2. Orðalag í 7. grein skýrt svo ekki fari á milli mála að íslenskir ríkisborgarar þurfi ekki að hafa haft þriggja ára samfellda búsetu á Íslandi.
    Engin efnisleg breyting, en misskilja mátti fyrra orðalag. Sjá 1.2.
  3. Lágmarksfjöldi keppenda ákveðinn jafn í öllum flokkum. Að þeim fjölda frátöldum er valið inn í mótið samkvæmt forgjöf, að teknu tilliti til hámarksforgjafar sem sett er í hverjum flokki. (7. grein).

Sama fyrirkomulag á vali þátttakenda og hefur verið við lýði í Íslandsmótinu í golfi undanfarin ár. Áhersla lögð á jafnræði milli aldursflokka og kynja. Sjá einnig 1.2.

  1. Ef kylfingur forfallast eftir að rástímar 1. umferðar hafa verið gefnir út er efsta kylfingi á biðlista í viðkomandi flokki boðið sætið (7. grein).

Talið bæði einfaldast í framkvæmd og skýrast fyrir keppendur.

  1. Nokkrar smærri breytingar.

Reglugerð um Íslandsmót golfklúbba í flokkum eldri kylfinga

  1. Skráningarfrestur er nú til 1. júni (4. grein) og kveðið á um endurgreiðslur þátttökugjalda ef klúbbur hættir við þátttöku.

Sjá 1.4.

  1. Gert ráð fyrir að fjöldi sveita í neðstu deild geti orðið allt að tíu (10. grein) og leikfyrirkomulag ákveðið m.t.t. fjölda sveita (11. grein). Með þessu er reglugerðin samræmd reglugerð um Íslandsmót golfklúbba í fullorðinsflokkum og tryggt að nýir klúbbar geti alltaf skráð sig til leiks. Í fyrri reglugerð gat sú staða komið upp að klúbbar gátu ekki tekið þátt í Íslandsmótinu ef t.d. átta sveitir voru þegar í neðstu deild og einn eða tveir nýir klúbbar skráðu sig til leiks.
    Sjá einnig 1.4.
  2. Orðalag í 12. grein skýrt varðandi útreikning á árangri og ákvörðun um bráðabana.
    Engar efnislegar breytingar.
  3. Tilgreint í 13. grein að í útsláttarkeppni (keppni um 1.-4. sæti) þurfi liðsstjóri ekki að skila liðsskipan næstu umferðar fyrr en bæði hans sveit og sveitin sem hann mun mæta í næstu umferð hafi lokið leik í núverandi umferð.
    Mótsstjórnir hafa yfirleitt veitt liðsstjórum þennan slaka, þ.e. að bíða eftir að mótherjinn hafi lokið leik. Talið var rétt að festa þessa útfærslu í reglugerðinni..
  4. Nokkrar smávægilegar orðalagsbreytingar.

Ýmis atriði varðandi framkvæmd Íslandsmóta golfklúbba hafa verið samræmd.

Skráningarfrestur er nú til 1. júní í öllum Íslandsmótunum (sami frestur og var áður í Íslandsmótum golfklúbba í flokkum fullorðinna) og reglur eru skýrari varðandi endurgreiðslur þátttökugjalda ef sveit hættir við þátttöku. Í Íslandsmótum golfklúbba fullorðinna og eldri kylfinga gengur sá hluti þátttökugjalds  sem ekki er endurgreiddur til þess golfklúbbs sem heldur mótið þar sem endanleg fækkun á sér stað. Þannig getur t.d. afskráning klúbbs í 2. deild valdið því að tilfærslur verði milli deilda með þeim afleiðingum að færri klúbbar taki þátt í 3. deild. Sá hluti þátttökugjaldsins sem ekki er endurgreiddur gengur þá til klúbbsins sem heldur mótið í 3. deild.

Í Íslandsmótum golfklúbba fullorðinna og eldri kylfinga er skýrar kveðið á um hvaða afleiðingar afskráning klúbbs hefur á tilfærslur milli deilda. Þannig verða engar tilfærslur milli deilda ef afskráning berst inn 14 daga fyrir fyrsta leikdag. Berist afskráning fyrr (eða sveit skráir sig ekki til keppni) er einungis sveitum í sætum 1-4 í næstu deild fyrir neðan boðið að taka sæti þeirrar sveitar sem afskráði sig.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ