Auglýsing

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, fór fram þann 1. ágúst. Mótið sem haldið var í samstarfi við STEFNI hf., fór fram á frídegi verslunarmanna, mánudaginn 1. ágúst. Þetta var í 26. sinn sem mótið fer fram.

Venju samkvæmt var nokkrum af bestu kylfingum landsins boðið til leiks og í ár var leikið í þágu stuðningsfélagsins Einstök börn. Einstök börn er stuðningsfélag barna og ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var stofnað 13. mars 1997 af foreldrum nokkurra barna en nú hefur félagið stækkað ört og eru hátt í 500 fjölskyldur í félaginu.

Fyrirkomulagið í Einvíginu var þannig að fyrstu tvær holurnar í einvíginu voru leiknar með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það var farið í hið hefðbundna “shoot-out” fyrir þá sem eru með hæsta skor á viðkomandi braut.

Það er sjóðastýringarfélagið STEFNIR sem var styrktaraðili Einvígisins á Nesinu í ár. Þorsteinn Guðjónsson formaður Nesklúbbsins og Magnús Örn Guðmundsson frá STEFNI, afhentu Guðrúnu Helgu Harðadóttur, framkvæmdarstjóra Einstakra barna ávísun að upphæð kr. 1.000.000 í mótslok.

Sigurvegari mótsins var hinn átján ára gamli Bjarni Þór Lúðvíksson, nýkrýndur klúbbmeistari Nesklúbbsins, stóð uppi sem sigurvegari eftir æsispennandi lokaholu þar sem hann sigraði Gunnlaug Árna Sveinsson úr GKG.

Úrslit í Einvíginu 2022 urðu eftirfarandi:

  1. sæti: Bjarni Þór Lúðvíksson
  2. sæti: Gunnlaugur Árni Sveinsson
  3. sæti: Aron Snær Júlíusson
  4. sæti: Perla Sól Sigurbrandsdóttir
  5. sæti: Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
  6. sæti: Ragnhildur Kristinsdóttir
  7. sæti: Hlynur Bergsson
  8. sæti: Birgir Leifur Hafþórsson
  9. sæti: Guðrún Brá Björgvinsdóttir
  10. sæti: Magnús Lárusson
ÁrSigurvegarar frá upphafi:
1997     Björgvin Þorsteinsson
1998     
Ólöf María Jónsdóttir
1999     Vilhjálmur Ingibergsson
2000     Kristinn Árnason
2001     Björgvin Sigurbergsson
2002     Ólafur Már Sigurðsson
2003     Ragnhildur Sigurðardóttir
2004     Magnús Lárusson
2005Magnús Lárusson
2006     Magnús Lárusson
2007     Sigurpáll Geir Sveinsson
2008     Heiðar Davíð Bragason
2009     Björgvin Sigurbergsson
2010     Birgir Leifur Hafþórsson
2011     Nökkvi Gunnarsson
2012     Þórður Rafn Gissurarson
2013     Birgir Leifur Hafþórsson
2014     Kristján Þór Einarsson
2015      Aron Snær Júlíusson
2016       Oddur Óli Jónasson
2017       Kristján Þór Einarsson
2018      Ragnhildur Sigurðardóttir
2019      Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020      Haraldur Franklín Magnús
2021      Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2022Bjarni Þór Lúðvíksson

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ