Axel Bóasson, GK, endaði í 6. sæti á Tinderbox Charity Challenge mótinu sem fram fór í Óðinsvéum í Danmörku.
Um var að ræða mót á Nordic Tour atvinnumótaröðinni.
Leikið var með punktafyrirkomulagi og fékk Axel alls 115 punkta á þremur keppnishringjum.
Sigurvegarinn var með 121 punkt.
Andri Þór Björnsson úr GR lék einnig á þessu móti en hann fékk alls 64 punktar á fyrstu tveimur keppnisdögunum og komst ekki í gegnum niðurskurðinn.
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-07-01-at-5.02.24-PM-1024x290.png)
![- Golfsamband Íslands](https://www.golf.is/wp-content/uploads/2020/04/Screen-Shot-2019-07-01-at-5.02.53-PM-1024x245.png)