Axel Bóasson.
Auglýsing

Axel Bóasson, atvinnukylfingur úr Keili, endaði í öðru sæti á GEBWELL meistaramótinu sem fram fer á Sand Valley vellinum í Póllandi. Axel lék samtals á 11 höggum undir pari vallar (67-67-71) og var hann þremur höggum á eftir sigurvegaranum.

Þetta er annað mótið af alls þremur sem fer fram á þessum velli og eru mótin hluti af Nordic Golf League atvinnumótaröðinni – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Alls tóku níu íslenskir keppendur á þessu móti. Axel endaði í þriðja sæti á fyrsta mótinu í Póllandi og í öðru sæti á þessu móti.

Hákon Örn Magnússon, GR, er í 33. sæti á -2 samtals (68-74). Bjarki Pétursson, GKG, endaði í 31. sæti á -1 samtals (73-70-72) og Hákon Örn Magnússon, GR, endaði í 36. sæti á pari vallar samtals (68-74-74).

Á stigalistanum er Axel í 9. sæti en hann hefur leikið á alls fjórum mótum á þessu tímabili.

Mótaröðin hefur reynst íslenskum kylfingum vel á undanförnum árum og opnað dyr inn á Áskorendamótaröðina (Challenge Tour). Fimm efstu á stigalistanum í lok keppnistímabilsins fá keppnisrétt á Challenge Tour og þrír sigrar á þessu tímabili tryggja einnig keppnisrétt á Challenge Tour.

Mótið hófst 13. apríl og lokahringurinn fór fram 15. apríl.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit frá mótinu í Póllandi.

Aron Snær Júlíusson (GKG), Andri Þór Björnsson (GR), Daníel Ísak Steinarsson (GK), Ragnar Már Garðarsson (GKG), Sigurður Arnar Garðarsson (GKG) og Svanberg Addi Stefánsson (GK) komust ekki í gegnum niðurskurðinn á þessu móti.

Aron Bergsson, er einnig á meðal keppenda, en hann á íslenska foreldra en hefur búið að mestu í Svíþjóð. Systir Arons, Andrea Bergsdóttir, hefur leikið með íslenska kvennalandsliðinu undanfarin ár.

Fyrir tveimur dögum lauk móti á þessum sama stað.

Axel Bóasson, GK, endaði í þriðja sæti á -10 samtals (70-69-67), Andri Þór Björnsson, GR, endaði í 11. sæti á -6 samtals (68-69-73), Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, lék á -5 og endaði í 17. sæti. Sigurður Arnar setti vallarmet á öðrum keppnisdegi þegar hann lék á 65 höggum eða -7. Hann bætti vallarmetið um eitt högg. Bjarki Pétursson, GKG, endaði í 40. sæti á pari vallar samtals (68-75-75).

Hákon Örn Magnússon, GR, Aron Snær Júlíusson, GKG léku á pari vallar á fyrstu tveimur hringjunum og komust ekki í gegnum niðurskurðinn. Daníel Ísak Steinarsson, GK, Ragnar Már Garðarsson, GKG, og Svanberg Addi Stefánsson, GK komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi mótaröð fer fram í Póllandi. Mótið er það fyrsta af alls þremur sem fram fer á þessu svæði næstu daga. Alls eru 152 keppendur og koma þeir frá 11 löndum.

Lokamótið og það þriðja í röðinni hefst mánudaginn 17. apríl en það mót heitir Valley Spring Series Final.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ