Auglýsing

Þriðja mót tímabilsins á Áskorendamótaröð barna – og unglinga fer fram 21. júlí á Kálfatjarnarvelli hjá Golfklúbbi Vatnsleysustrandar.

Skráningu lýkur kl. 12:00 fimmtudaginn 20. júlí 2023.

Smelltu hér til að skrá þig.

Leikfyrirkomulag mótaraðarinnar er eftir alþjóðlegri fyrirmynd mótaraðar fyrir yngri kylfinga. Þessi mótaröð er hugsuð sem fyrstu skref og stuðningur við keppnisþátttöku ungra kylfinga. Markmiðið er að hafa gaman og aðaláherslan lögð á að læra leikinn og mismunandi leikform hans. Þjálfarar, liðstjórar og foreldrar eru hvattir til þess að taka virkan þátt í að gera þessi mót sem skemmtilegust fyrir þátttakendur með leiðbeinandi og jákvæðu hugarfari í kringum

Helstu atriði sem lagt verður upp með:

● Ræst verður út frá kl. 10:00

● Kylfuberar eru leyfðir, Sjá almennar reglur um kylfubera.

● Höggleiks afbrigði: eftir 9 högg er skylda að taka upp og skrifa 10 högg.

● Fallreitur skal vera flatarmegin þegar slegið er yfir vítasvæði.

● Ef bolti týnist er lausnin eins og um vítasvæði væri að ræða.

Eitt högg í víti þar sem boltinn fór í runna eða þ.h. og leikið áfram.

● Mótið er ekki stigamót

● Þeim kylfingum sem kjósa að leika til forgjafar er heimilt að flytja sig upp um flokk.

● Þeir kylfingar sem leika í flokki 10 ára og yngri leika ekki til forgjafar.

Keppt verður í eftirfarandi aldursflokkum bæði hjá stelpum og strákum:

● 10 ára og yngri 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar gull teigar

● 12 ára og yngri 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar teiga 43

● 14 ára og yngri 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar teiga 43

● 15-18 ára 9 holur með höggleiks afbrigði, án forgjafar teiga 43

Skráningar og Þátttökugjald

Þátttakendur skulu skrá sig í mótið á www.golf.is fyrir kl.12:00 á þriðjudeginum fyrir mótið. Afskráning skal berast tímanlega á netfanggolfklúbbs gvsgolf@gmail.com sem heldur mótið.

Þátttökugjald er 2.500,-kr.

Rástímar og ráshópar

Rástímar verða kynntir fyrir mótið en ræst er út frá kl.13:00 á mótsdegi. Forráðamenn eru beðnir um að fylgjast með tölvupósti og með mótinu í GolfBox.

Æfingahringur

Einn æfingahringur er innfalinn í mótsgjaldi en keppnisvöllurinn verðuropinn fyrir æfingahring fyrir skráða keppendur í síðasta lagi einum degi áður en mótið hefst. Vinsamlegast hafið samband við klúbbinn til þess að panta rástíma. Athugið að greiða þarf þátttökugjald áður en æfingahringur er leikinn.

Verðlaun og verðlaunaafhending

Allir keppendur mótsins fá viðurkenningarskjal að leik loknum en einnig verða aukaverðlaun veitt fyrir 1. – 3. sæti í báðum flokkum. Ef keppendur eru jafnir í fyrsta sæti þá verður leikinn bráðabani. Ef keppendur eru jafnir í öðrum sætum skiptast verðlaun jafnt á milli þeirra keppenda.

Verðlaunaafhending fer fram um leið og leik lýkur í hverjum flokki. Hlökkum til að sjá ykkur!

Með fyrirvara um breytingar.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ