Auglýsing

Boðið er upp á 19 íþróttagreinar á Unglingalandsmóti UMFÍ sem fram fer á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina og er golfíþróttin þar á meðal.

Á meðal greinanna eru hlaupaskotfimi (biathlon), bogfimi, frisbígolf, frjálsar íþróttir, golf, grasblak, grashandbolti, hestaíþróttir, hjólreiðar, júdó, knattspyrna, kökuskreytingar, körfubolti, motocross og pílukast, skák, stafsetning, sund og upplestur.

Auk þess verður kynning á bandý, sandkastalagerð, víðavangshlaup, barnaskemmtun, glíma, leikjagarður og margt fleira.

Þátttakendur  geta skráð sig í eins margar greinar og viðkomandi vill taka þátt í.

Opið er fyrir skráningu núna!

Allar upplýsingar um mótið á www.umfi.is 

Unglingalandsmót UMFÍ er líka á Facebook

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ