Aron Snær Júlíusson. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Evrópumót einstaklinga hjá áhugakylfingum í karlaflokki hófst 23. júní í Frakklandi en mótinu lauk í dag. Þrír íslenskir keppendur voru á meðal þátttakenda. Kristófer Karl Karlsson (GM), Hákon Örn Magnússon (GR) og Aron Snær Júlíusson (GKG).


Aron Snær lék frábærlega vel og var ekki langt frá því að komast á verðlaunapall en hann endaði í 5. sæti.

Aron Snær lék hringina fjóra á 13 höggum undir pari vallar, (67-69-70-65). Christoffer Bring frá Danmörku fagnaði Evrópumeistaratitlinum á -20 undir pari samtals.

Lokaúrslit og staða hér:

Nánari upplýsingar eru hér:

Keppnisfyrirkomulagið var höggleikur en alls voru leiknar 72 holur á fjórum keppnisdögum eða 18 holur á dag. Keppt var á Golf du Médoc Resort í Frakklandi.

Hákon Örn og Kristófer Karl komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Þetta er í 34. sinn sem EM einstaklinga fer fram. Alls eru 144 keppendur og koma þeir frá 32 þjóðum. Mót

Mótið fór fyrst fram árið 1986 og er eitt af sterkustu áhugamannamótum heims.

Margir þekktir leikmenn hafa tekið þátt á þessu móti. Má þar nefna Rory McIlroy (2006) og Sergio Garcia (1995) sem stóðu uppi sem Evrópumeistarar áður en þeir gerðust atvinnukylfingar. Lee Westwood (1993), Paul Casey (1999), Danny Willet (2007) og Tommy Fleetwood (2010) hafa einnig sigrað á EM einstaklinga.

Nánari upplýsingar um mótið – smelltu hér – skor, rástímar og staða.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ