#image_title
Auglýsing

Sigurður Arnar Garðarsson, Hlynur Bergsson og Aron Snær Júlíusson hófu leik í gær á Gamle Fredrikstad Open sem fram fer á samnefndum velli í Noregi dagana 21.-maí – 23. maí.

Mótið er hluti af Nordic Golf League sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu. 

Aron Snær er efstur eftir fyrsta keppnisdaginn en hann lék á 65 höggum eða 7 höggum undir pari vallar – þar sem hann fékk 7 fugla og lék aðrar holur á pari. Sigurður Arnar er á pari vallar eða 72 höggum og Hlynur er á 2 höggum yfir pari eftir fyrsta keppnisdaginn.

Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit í þessu móti.   

Smelltu hér fyrir stigalistann á Nordic Golf League 2024:

Aron Bergsson er einnig á meðal keppenda. Aron hefur keppt undir merkjum GKG á Íslandi en hann er búsettur í Svíþjóð og keppir fyrir Hills golfklúbbinn þar í landi. Hann er bróðir Andreu Bergsdóttur sem hefur verið að gera það gott í bandaríska háskólagolfinu að undanförnu.

Það er að miklu að keppa á Nordic Golf League. Þeir keppendur sem ná að sigra á þremur mótum á tímabilinu fá keppnisrétt á Challenge Tour – Áskorendamótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Fimm efstu sætin á stigalistanum gefa einnig keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili – en heildarfjöldi kylfinga sem fá keppnisrétt á Challenge mótaröðinni er 5.

Haraldur Franklín Magnús, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafa allir farið þessa leið til þess að öðlast keppnisrétt á Challenge Tour. 

Aron Snær Júlíusson Myndsethgolfis

Deildu:

Auglýsing
 
Auglýsing
 

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ