Auglýsing

Okkar fremstu kylfingar leggja hart að sér við æfingar þó snjór þekji alla golfvelli landsins enda styttist í keppnistímabilið. Um helgina tóku 40 kylfingar úr afreks- og framtíðarhópum GSÍ tóku þátt í golfæfingum og þolprófum í Kórnum. Umdanfarnar vikur hafa kylfingarnir farið í líkamsmælingar hjá Gauta Grétarssyni sjúkraþjálfara þar sem styrkur, liðleiki og jafnvægi er sérstaklega skoðað og metið. Dr. Viðar Halldórsson var með afar fróðlegan og gagnlegan fyrirlestur fyrir kylfingana og aðstandendur um hugarþjálfun.  Hugarþjálfun er vanmetin þáttur í þjálfun og fengu allir gagnleg ráð og verkefni í hendurnar til að vinna með í vetur.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ