Eva Kristinsdóttir lauk frábæru móti á Illini Women’s Invitational á Medinah í Illinois í Bandaríkjunum í gær, þriðjudaginn 13. október. Hún endaði í sjöunda sæti á átta höggum undir pari og bætti skólamet Iowa háskólans yfir bæði 36 og 54 holur, auk þess að jafna metið yfir 18 holur.
Eva lék hringina þrjá á 66, 69 og 73 höggum. Með því bætti hún 54 holu skólametið um eitt högg. Hún fékk einn örn, þrettán fugla og sjö skolla á hringjunum þremur, en einungis þrír kylfingar sóttu fleiri högg á völlinn í mótinu en Eva.
Iowa skólinn, sem Eva leikur fyrir, lauk keppni í níunda sæti af fimmtán liðum. Eva lék best allra í liðinu, en Maura Peters kom þar á eftir á tveimur höggum undir pari.

Eva hefur farið vel af stað á sínu fyrsta tímabili í bandaríska háskólagolfinu. Hún varð jöfn í fimmta sæti á Badger Invitational í september og jöfn í áttunda sæti á Diane Thomason Invitational, þar sem Iowa sigraði í liðakeppninni.
Hún hefur einnig tvívegis verið valin nýliði vikunnar í Big Ten deildinni á tímabilinu.
Næsta verkefni Evu og liðsfélaga hennar er Route 66 Invitational í Tulsa í Oklahoma dagana 19.-20. október.



