Íslenska 50+ karlalandsliðið í golfi stóð uppi sem sigurvegari á Evrópumóti landsliða í 2. deild sem lauk í dag á Sedin Golf Resort í Slóvakíu. Ísland hafði mikla yfirburði í mótinu og tryggði sér um leið sæti í efstu deild Evrópumótsins á næsta ári.
Ísland lék hringina þrjá á samtals 672 höggum, eða 15 höggum yfir pari. Liðið sigraði með 23 högga mun en heimamenn í Slóvakíu urðu í öðru sæti á +38.
Íslenska liðið var í efsta sæti eftir fyrsta hringinn og jók forskot sitt verulega á öðrum keppnisdegi. Heildarskor Íslands á hringjunum þremur var 232, 218 og 222 högg. Þrjú bestu skor liðsins töldu á hverjum hring.
Á lokahringnum léku Jón Snorri Halldórsson og Sigurbjörn Þorgeirsson báðir á 73 höggum, eða pari vallarins. Frans Páll Sigurðsson lék á 76 höggum og töldu þessi þrjú skor fyrir Ísland. Siggeir Vilhjálmsson lék lokahringinn á 80 höggum.
Sigurbjörn Þorgeirsson vann jafnframt einstaklingskeppni mótsins. Hann lék hringina þrjá á 77, 70 og 73 höggum og lauk keppni á 220 höggum, einu höggi yfir pari. Sigurbjörn sigraði með fjögurra högga mun.
Jón Snorri Halldórsson varð einnig á meðal efstu manna og lauk keppni í þriðja sæti á sex höggum yfir pari. Frans Páll Sigurðsson varð sjötti á átta yfir pari og Siggeir Vilhjálmsson endaði jafn í 13. sæti á sautján yfir pari.
Mótið var haldið dagana 1.-3. september og var þetta fyrsta Evrópumót 50+ karlalandsliða í 2. deild. Ísland skrifaði því nafn sitt í sögubækurnar sem fyrsti sigurvegari mótsins.
Heildarúrslit mótsins má nálgast hér






