GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Frá vinstri: Rögnvaldur Magnússon frá Golfskálanum, vinningshafinn Kolbrún Klara Gísladóttir og Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar.
Auglýsing

Kolbrún Klara Gísladóttir hlaut aðalvinninginn og Golfklúbbur Ísafjarðar sigraði í flokki golfklúbba  

Metfjöldi leikja var spilaður í Regluverðinum 2026, golfleik Varðar og Golfsambands Íslands, og yfir 7 þúsund kylfingar skráðu sig til leiks. Þátttakendur spiluðu leikinn 123 þúsund sinnum og 3.400 kylfingar unnu sér inn nafnbótina „Regluvörður 2026“ með því að ná yfir 6 þúsund stigum í einum leik. 

Regluvörður 2026 er ný og endurbætt útgáfa leiksins sem kom út í vor en leikurinn gerir kylfingum kleift að bæta þekkingu sína á golfreglum á skemmtilegan hátt og safna stigum fyrir sig og sinn golfklúbb. 

Dregið var úr hópi þeirra sem unnu sér inn næg stig til að fá nafnbótina „Regluvörður“ og í ár er vinningshafi aðalvinningsins Kolbrún Klara Gísladóttir. Hún fær vikuferð fyrir fjóra til Villaitana á Spáni í samstarfi við Golfskálann, auk Golfverndar frá Verði í eitt ár. 

Ferðafélagarnir sem Kolbrún Klara valdi til að fara með henni til Villaitana á Spáni fá einnig golffatnað frá toppi til táar frá Golfskálanum. 

Vinningshafinn Kolbrún Klara Gísladóttir og ferðafélagar hennar sem eru á leið til Villaitana á Spáni 

Golfklúbbur Ísafjarðar sigraði í flokki golfklúbba 

Í ár var einnig keppni milli golfklúbba um hverjir voru með flesta Regluverði innan sinna raða og það var Golfklúbbur Ísafjarðar sem sigraði með hlutfallslega flesta Regluverði.  

Golfleiknum er jafnframt ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sérsniðinni tryggingu fyrir kylfinga. Hún veitir vernd gegn óvæntum atvikum bæði innan sem utan golfvallar og gerir kylfingum meðal annars kleift að fagna almennilega með hollinu þegar draumahöggið verður að veruleika.  

Vörður er einnig einn af aðalbakhjörlum afrekssjóðsins Forskots, sem hefur það að markmiði að gera afrekskylfingum auðveldara að æfa og keppa við bestu mögulegu skilyrði.  

GSÍ og Vörður óska Kolbrúnu Klöru innilega til hamingju með vinninginn og þakkar um leið öllum þeim sem tóku þátt í Regluverðinum í sumar! 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ