GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

f.v. Sigríður Kristinsdóttir, Steinunn Sæmundsdóttir, Helga Þorvaldsdóttir, Þórdís Geirsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir og Lilja Karlsdóttir
Auglýsing

50+ kvennalandslið Íslands hefur leik á Evrópumóti landsliða í golfi þriðjudaginn 1. september. Mótið fer fram á BlackSeaRama Golf Resort í Búlgaríu dagana 1.-5. september.

Íslenska liðið keppir í efstu deild mótsins ásamt 15 öðrum þjóðum. Fyrir Íslands hönd leika:

  • Ragnheiður Sigurðardóttir
  • Þórdís Geirsdóttir
  • Steinunn Sæmundsdóttir
  • Lilja Karlsdóttir
  • Helga Þorvaldsdóttir
  • Sigríður Kristinsdóttir

Auk Íslands taka Austurríki, Belgía, England, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Írland, Ítalía, Holland, Noregur, Portúgal, Skotland, Spánn, Svíþjóð og Sviss þátt.

Sex kylfingar skipa hvert lið. Fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur þar sem fimm bestu skor hvers liðs telja á hvorum hring. Samanlögð úrslit höggleiksins ráða því í hvaða riðli liðin leika þegar holukeppnin hefst á þriðja keppnisdegi.

Átta efstu liðin eftir höggleikinn komast í A-riðil og leika um Evrópumeistaratitilinn. Liðin í sætum 9-16 fara í B-riðil og leika um neðri sæti mótsins. Í hverri viðureign holukeppninnar er leikinn einn fjórmenningsleikur og fjórir tvímenningsleikir.

18 hola vallarins

Holukeppnin stendur yfir í þrjá daga og lýkur mótinu laugardaginn 5. september. Tvö neðstu liðin leika í 2. deild árið 2027.

Evrópumót 50+ kvennalandsliða var fyrst haldið árið 2006 og fer nú fram í 20. sinn. England hefur titil að verja eftir sigur á mótinu á Spáni árið 2025.

Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum íslenska liðsins á mótssíðu Evrópska golfsambandsins.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ