50+ karlalandslið Íslands hefur leik á Evrópumóti landsliða í golfi þriðjudaginn 1. september. Mótið fer fram á Sedin Golf Resort í Slóvakíu og stendur yfir dagana 1.-3. september.
Íslenska liðið keppir í 2. deild Evrópumótsins ásamt níu öðrum þjóðum. Fyrir Íslands hönd spila:
- Jón Snorri Halldórsson
- Frans Páll Sigurðsson
- Sigurbjörn Þorgeirsson
- Siggeir Vilhjálmsson
Auk Íslands taka Króatía, Tékkland, Eistland, Ungverjaland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía og Tyrkland þátt.
Mótið er leikið sem 54 holu höggleikur og fer einn 18 holu hringur fram á hverjum keppnisdegi. Fjórir kylfingar leika í hverju liði og þrjú bestu skor liðsins telja til úrslita á hverjum degi. Samanlagt skor liðanna yfir hringina þrjá ræður lokaröðinni.
Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í efstu deild Evrópumóts 50+ karlalandsliða á næsta ári. Mótið er haldið í fyrsta sinn eftir að Evrópska golfsambandið ákvað að bæta við 2. deild vegna fjölgunar þátttökuþjóða.
Keppnisrétt hafa karlkyns áhugakylfingar sem eru orðnir 50 ára og eru með 9,0 í forgjöf eða lægra.
Sedin Golf Resort er staðsett við bæinn Veľké Úľany í suðvesturhluta Slóvakíu.

Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum íslenska liðsins á mótssíðunni.





