GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Hulda Clara Gestsdóttir lék sig í gær, mánudaginn 13. júlí, inn í lokaúrtökumót AIG Women’s Open, sem er eitt af fimm risamótum kvennagolfsins. Undankeppnin fór fram á Delamere Forest vellinum í Cheshire á Englandi.

Hér má sjá úrslit mótsins

Hulda lék hringinn á 71 höggi, pari vallarins, og endaði jöfn í níunda sæti. Alls tóku 126 kylfingar þátt í undankeppninni og kepptu um 18 laus sæti í lokaúrtökumótinu.

Hulda fékk fjóra fugla, fjóra skolla og tíu pör á hringnum. Hún fékk skolla á annarri holu en svaraði vel með fuglum á sjöttu og sjöundu holu og lék fyrri níu holurnar á 34 höggum, einu höggi undir pari.

Hún hóf síðari níu holurnar með fugli á þeirri tíundu en fékk skolla á 14., 15. og 17. holu. Hulda lauk hringnum með fugli á 18. holu og tryggði sér með honum sæti í lokaúrtökumótinu.

Lokaúrtökumótið verður leikið á St Annes Old Links mánudaginn 27. júlí. Þar keppir Hulda um sæti í sjálfu AIG Women’s Open, sem fer fram á Royal Lytham & St Annes dagana 30. júlí til 2. ágúst.

Mótið verður haldið í 50. sinn í ár og verða keppendur 144 talsins. Þetta er í sjötta skiptið sem völlurinn heldur mótið, en á meðal þeirra sem hafa áður sigrað þar eru Annika Sörenstam, Sherri Steinhauer og Catriona Matthew.

Frábær árangur hjá Huldu, við munum fylgjast vel með hennar gengi í lokaúrtökumótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ