GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Haraldur Franklín
Auglýsing

Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús er á meðal keppenda á German Challenge powered by VcG mótinu á HotelPlanner Tour. Haraldur lék fyrstu tvo hringina á þremur höggum undir pari og er jafn í 44. sæti þegar mótið er hálfnað.

Mótið fer fram dagana 9.-12. júlí á Wittelsbacher Golfclub í Neuburg an der Donau í Þýskalandi. Verðlaunafé mótsins nemur 300 þúsund evrum og eru 2.000 stig í boði á stigalista HotelPlanner Tour. Mótið markar jafnframt miðbik 29 móta tímabilsins á mótaröðinni.

Haraldur hóf leik á fimmtudaginn og lék fyrsta hringinn á 70 höggum, tveimur höggum undir pari. Hann fékk sex pör á fyrstu sex holunum áður en hann setti í næsta gír og fékk þrjá fugla í röð á 7., 8. og 9. holu.

Á seinni níu holunum fékk Haraldur fugla á 14. og 15. holu en tapaði höggum á 13., 17. og 18. holu. Hann lauk hringnum því með fimm fugla og þrjá skolla.

Haraldur fylgdi góðum fyrsta hring eftir með 71 höggi á föstudag, einu höggi undir pari. Hann byrjaði hringinn með fugli á 1. holu en fékk skolla á þeirri sjöundu og lék fyrri níu holurnar á pari.

Á seinni níu holunum fékk hann fugl á 16. holu, skolla á þeirri 17. en svaraði strax fyrir sig með fugli á 18. holu. Haraldur fékk því þrjá fugla og tvo skolla á öðrum hringnum og er samtals á þremur höggum undir pari eftir 36 holur.

Scorecard: Haraldur Magnus's round results (R1, R2) across holes 1–18 with pars and totals in a dark themed table.
Haraldur er í góðum málum

Wittelsbacher-völlurinn er langur, eða um 6.839 metrar, af öftustu teigum. Bæði fyrsta og síðasta holan eru par fimm, en lokaholan er 627 jardar og ein lengsta hola sem leikin er á HotelPlanner Tour.

Haraldur leikur þriðja hring mótsins á laugardag en hægt er að fylgjast með skori hans hér.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ