GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Evrópumótum landsliða lauk laugardaginn 11. júlí, þar sem öll fjögur íslensku landsliðin léku lokaleiki sína í mótinu.

Karlalandsliðið endaði mótið með sterkum 3.5-1.5 sigri gegn Belgíu og tryggði sér 11. sæti mótsins. Piltalandsliðið tapaði fyrir sterku liði Noregs, 1.5-3.5, og endaði í 10. sæti, sem er einn besti árangur íslensks piltalandsliðs frá upphafi. Kvennalandsliðið tapaði gegn Belgíu, 2-3, og endaði í 16. sæti. Stúlknalandsliðið tapaði gegn Hollandi, 1.5-3.5, og endaði í 18. sæti mótsins.

Karlalandsliðið vann Belgíu og endaði í 11. sæti

Karlalandsliðið lauk keppni í Eistlandi með sterkum 3.5-1.5 sigri gegn Belgíu í leik um 11. sætið.

Íslenska liðið varð í 15. sæti í höggleiknum en gerði vel í holukeppninni. Liðið vann Svíþjóð í fyrstu umferð og tryggði þar með sæti sitt áfram í efstu deild. Eftir tap gegn Wales í gær svaraði liðið svo með góðum sigri gegn Belgíu í dag og endaði í 11. sætinu.

Gunnlaugur Árni Sveinsson og Veigar Heiðarsson unnu fjórmenninginn með tveimur holum. Skúli Gunnar Ágústsson vann sinn leik 4&2 og Sigurður Bjarki Blumenstein vann öruggan 5&4 sigur. Aron Emil Gunnarsson gerði jafntefli í sínum leik.

Úrslit Íslands gegn Belgíu:

Gunnlaugur Árni Sveinsson / Veigar Heiðarsson unnu Léopold Isserentant / Jarno Tollenaire, 2&0
Skúli Gunnar Ágústsson vann Anthony De Schutter, 4&2
Aron Emil Gunnarsson gerði jafntefli við Liam Bentein
Sigurður Bjarki Blumenstein vann James Skeet, 5&4
Tómas Eiríksson Hjaltested tapaði fyrir Arthur Estas, 3&2

Góður árangur hjá íslenska karlalandsliðinu, sem endaði í 11. sæti og bætti sig því um tvö sæti á milli ára.

Eight men in matching blue blazers pose for a team photo on a golf course, arranged in two rows (four standing, four seated).
Íslenski hópurinn

Kvennalandsliðið endaði í 16. sæti eftir naumt tap

Kvennalandsliðið mætti Belgíu í leik um 15. sætið á Írlandi. Leikurinn var jafn og spennandi, en Belgía hafði að lokum betur, 3-2.

Þetta var þriðji dagurinn í röð þar sem viðureign kvennalandsliðsins tapaðist með minnsta mun, 3-2. Liðið tapaði gegn Hollandi eftir bráðabana á 20. holu í fyrstu umferð holukeppninnar, tapaði svo 3-2 gegn Tékklandi og aftur 3-2 gegn Belgíu í dag.

Fjóla Margrét og Guðrún Nolan unnu góðan sigur í fjórmenning og Karen Lind Stefánsdóttir vann Louise Cuyvers, 4&2. Belgía vann hins vegar hina leikina og tryggði sér sigur í viðureigninni.

Úrslit Íslands gegn Belgíu:

Fjóla Margrét Viðarsdóttir / Guðrún J. Nolan Þorsteinsdóttir unnu Sarah Helm / Diane Denis, 4&2
Eva Kristinsdóttir tapaði gegn Elsie Verhoeven, 3&1
Perla Sól Sigurbrandsdóttir tapaði fyrir Emma Defleur, 4&3
Elsa Maren Steinarsdóttir tapaði fyrir Audrey Lam, 3&2
Karen Lind Stefánsdóttir vann Louise Cuyvers, 4&2

Kvennalandsliðið endaði því í 16. sæti Evrópumótsins.

Group of students in navy blazers posing outdoors, lifting their legs while standing behind chairs on a grassy field, smiling.
Íslenski hópurinn

Piltalandsliðið í 10. sæti eftir góða viku

Piltalandsliðið lék um 9. sæti gegn Noregi á Spáni. Norska liðið hafði betur, 3.5-1.5, og Ísland endaði því í 10. sæti mótsins.

Frábær árangur hjá íslenska piltalandsliðinu. Liðið varð í 15. sæti í höggleiknum en vann síðan Sviss og Svíþjóð í holukeppninni áður en það mætti Noregi í leik um 9. sætið. Þetta er einn besti árangur piltalandsliðsins frá upphafi, en liðið var í næstefstu deild á síðasta ári.

Björn Breki og Óliver Elí unnu stórsigur í fjórmenning og Gunnar Þór Heimisson gerði jafntefli við Cornelius Farhang. Norðmenn unnu aðra leiki og tryggðu sér 9. sætið.

Úrslit Íslands gegn Noregi:

Björn Breki Halldórsson / Óliver Elí Björnsson unnu Nikolai Eric Goosen / Knut Magnus Erlandsen, 5&3
Arnar Daði Svavarsson tapaði fyrir Mathias Aase, 4&3
Gunnar Þór Heimisson gerði jafntefli við Cornelius Farhang
Kristján Karl Guðjónsson tapaði Marius Kvande, 1 hola
Hjalti Kristján Hjaltason tapaði fyrir Leon Sebastian Hauger, 3&1

Piltalandsliðið endaði mótið í 10. sæti og leikur því aftur í efstu deild á næsta ári.

Group of young golfers in navy blazers posing on a lawn in front of a beige castle with a Spanish flag nearby.
Íslenski hópurinn

Stúlknalandsliðið endaði í 18. sæti

Stúlknalandsliðið mætti Hollandi í lokaumferð C-riðils í Sviss. Holland hafði betur, 3.5-1.5, og Ísland endaði í 18. sæti mótsins.

Eva Fanney Matthíasdóttir og Bryndís Eva Ágústsdóttir gerðu jafntefli í fjórmenningnum gegn Britt van Leeuwen og Daphne Haemers. Lilja Maren Jónsdóttir vann stórsigur gegn Angelinu Garnaat, 7&5, en Holland vann þrjá aðra leiki og tryggði sér sigur í viðureigninni.

Úrslit Íslands gegn Hollandi:

Eva Fanney Matthíasdóttir / Bryndís Eva Ágústsdóttir gerðu jafntefli við Britt van Leeuwen / Daphne Haemers
Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir tapaði fyrir Floor Rahusen, 5&4
Pamela Ósk Hjaltadóttir tapaði fyrir Sofie Nooij, 1 hola
Lilja Maren Jónsdóttir vann Angelinu Garnaat, 7&5
Embla Hrönn Hallsdóttir tapaði fyrir Fréderique Evers, 4&3

Stúlknalandsliðið endaði þar með í 18. sæti Evrópumóts stúlkna.

Seven young women in navy blazers posing on a wooden bench at a sunny golf course, with trees in the background.
Íslenski hópurinn

Evrópumótum landsliða er því lokið að þessu sinni. Mótin eru á meðal stærstu verkefna ársins hjá landsliðskylfingunum.

Vikan skilaði mikilvægri reynslu fyrir alla hópana og mörgum flottum augnablikum, bæði í höggleik og holukeppni. Frammistaða íslensku liðanna er hvatning fyrir áframhaldandi uppbyggingu og staðfesting á því öfluga starfi sem unnið er í íslensku golfi.

Ánægjulegt var að fylgjast með okkar fólki síðustu daga og óskum við öllum góðrar ferðar heim.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ