Íslandsmót golfklúbba í aldursflokkum 16- og 18 ára og yngri fer fram á Garðavelli á Akranesi dagana 24.-26. júní. Keppt er í drengjaflokki 16 ára og yngri og í bæði stúlkna- og drengjaflokki 18 ára og yngri. Frábær skráning hefur verið í mótin, en tæplega þrjátíu sveitir munu leika um Íslandsmeistaratitlana þrjá á Akranesi næstu daga.
Vegna mikillar þátttöku verður golf leikið frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Fjöldi keppenda, liðsstjóra og foreldra mun skapa líf og fjör á vellinum þar sem framtíðarstjörnur fá tækifæri til að etja kappi.
Hér má fylgjast með öllum úrslitum mótsins
Drengir 16 ára og yngri:
Alls eru þrettán lið í keppni drengja 16 ára og yngri.
- Golfklúbbur Akureyrar
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 1
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar 2
- Golfklúbbur Reykjavíkur
- Golfklúbbur Mosfellsbæjar 1
- Golfklúbbur Mosfellsbæjar 2
- Golfklúbbur Selfoss
- Golfklúbburinn Keilir 1
- Golfklúbburinn Keilir 2
- Nesklúbburinn
- Golfklúbbur Ísafjarðar
- Golfklúbburinn Leynir
- Golfklúbbur Hveragerðis
Stúlkur 18 ára og yngri:
Alls eru sjö lið í keppni stúlkna 18 ára og yngri.
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
- Golfklúbburinn Keilir
- Golfklúbburinn Keilir 2
- Golfklúbbur Akureyrar
- Golfklúbbur Reykjavíkur 1
- Golfklúbbur Reykjavíkur 2
- Golfklúbburinn Leynir/Skagafjörður
Drengir 18 ára og yngri:
Alls eru níu lið í keppni drengja 18 ára og yngri.
- Golfklúbbur Akureyrar
- Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
- Golfklúbbur Reykjavíkur
- Golfklúbbur Mosfellsbæjar 1
- Golfklúbbur Mosfellsbæjar 2
- Golfklúbburinn Keilir 1
- Golfklúbburinn Keilir 2
- Nesklúbburinn
- Golfklúbburinn Leynir



