GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Two smiling women golfers stand with clubs and bags on a green golf course, mountains in the background.
Regluvörður 2026 verður enn stærri og flottari en áður
Auglýsing

Regluvörður 2026, ný og endurbætt útgáfa af golfleik Varðar og Golfsambands Íslands, hefur litið dagsins ljós. Þar geta kylfingar bætt þekkingu sína á golfreglum á skemmtilegan hátt en þúsundir hafa spilað fyrri útgáfur. 

Nýja útgáfa leiksins býður upp á betri leikjaupplifun og fleiri áskoranir. Hægt er að spreyta sig á hundruðum spurninga og safna stigum sem telja bæði fyrir einstakling og golfklúbb kylfingsins. Til að hljóta nafnbótina „Regluvörður 2026“ þarf að ná yfir 6.000 stigum í einum leik. 

Stigahæsti golfklúbburinn verður krýndur sigurvegari þegar stigatalningu lýkur 20. ágúst nk. og jafnframt  verður dregið úr hópi þeirra kylfinga sem hafa unnið sér inn nafnbótina ,,Regluvörður 2026”. Sigurvegarinn fær vikuferð fyrir fjóra til Villaitana á Spáni í samstarfi við Golfskálann, auk Golfverndar frá Verði í eitt ár. 

Nýverið var samstarf Varðar og Golfsambands Íslands  einnig endurnýjað í fjórtánda sinn. Það hófst með stuðningi við pappírs útgáfu reglubókar GSÍ en þróaðist í gerð leiksins Regluvarðar, sem kom fyrst út árið 2013 og hefur notið mikilla vinsælda. Vörður er einnig einn af aðalbakhjörlum afrekssjóðsins Forskots sem hefur það að markmiði að gera afreks kylfingum auðveldara að æfa og keppa við bestu mögulegu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi. 

„Það er afar ánægjulegt að halda áfram þessu skemmtilega samstarfi við Golfsamband Íslands. Með því að leikja væða reglubók GSÍ hefur okkur tekist að efla þekkingu þúsunda kylfinga á golfreglunum og leikurinn hefur notið mikilla vinsælda í gegnum árin. Það er gaman að geta nú bætt um betur með nýjum og uppfærðum leik. Eins og í lífinu öllu skiptir miklu máli að þekkja leikreglurnar, fara öllu með gát og að sjálfsögðu vera vel tryggð, líka á golfvellinum,“ 

segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar. 

„Þekking á golfreglunum og góð háttsemi á vellinum er það sem við leggjum ávallt upp með í golfíþróttinni. Upplifun kylfinga verður bæði betri og skemmtilegri þegar þessir þættir eru til fyrirmyndar. Regluvörður er frábær leið til að efla þessa þekkingu á skemmtilegan hátt og við erum mjög ánægð með samstarfið við Vörð á verkefni sem þessu.  Sterkur stuðningur bakhjarla eins og Varðar eru stór þáttur í því að íslenskt golfsamfélag standi framarlega á alþjóðavísu,

segir Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands 

Hægt er að sækja leikinn á golf.vordur.is 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ