GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Ein af grunnreglum golfsins er að leika völlinn eins og hann er og boltann eins og hann liggur.

Þegar vallarskilyrði eru sérstaklega slæm vegna óvenjulegra aðstæðna, svo sem mikillar bleytu, snjóa, þýðu eða þurrka, getur nefnd sett staðarreglu um bætta legu. Sú heimild nær þó eingöngu til snöggslegins svæðis á almenna svæðinu en ekki til flata eða annarra svæða vallarins.

Þetta er ekki ný regla heldur hefur þessi takmörkun verið hluti af golfreglunum í mörg ár. Því er engin heimild í golfreglunum til að leyfa almenna bætta legu á flötum.

Golfreglurnar bjóða þó upp á lausnir þegar óeðlilegt ástand er á flöt, til dæmis vegna tímabundins vatns eða skemmda sem nefnd skilgreinir sem óeðlilegt ástand. Þá má færa boltann samkvæmt reglunum.

Ástæður sem oft eru nefndar fyrir bættri legu á flötum, svo sem grastoppar, grasleysi, ójafnir fletir eða venjulegt slit teljast hins vegar hluti af leiknum.

Hún heimilar hins vegar ekki viðgerð eða undanþágu vegna venjulegs viðhalds, götunar, náttúrulegrar ójöfnu, ójafnrar grassprettu eða venjulegs slits. Þessar aðstæður eru taldar hluti af þeim áskorunum sem kylfingar eiga að takast á við.

Kynntu þér alltaf staðarreglur vallarins – þær eru hluti af golfreglunum!

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ