Gunnlaugur Árni Sveinsson og liðsfélagar hans í LSU-háskólanum eru þessa dagana á meðal keppenda í úrslitum NCAA-háskólagolfsins. Mótið fer fram á Omni La Costa Resort & Spa í Carlsbad í Kaliforníu dagana 29. maí til 3. júní.
Fyrirkomulag úrslitamótsins er þrískipt. Fyrstu þrjá dagana eru leiknar 54 holur í höggleik. Að þeim loknum komast 15 efstu liðin áfram í fjórða hringinn, sem leikinn verður í dag. Þar verður einstaklingstitillinn ráðinn og átta efstu liðin tryggja sér sæti í holukeppni, þar sem bandarískur háskólameistari liða verður krýndur miðvikudaginn 3. júní.
LSU-liðið fór hægt af stað og var jafnt í næstsíðasta sæti eftir fyrsta keppnisdag. Fjögur bestu skor liðsins af fimm telja á hverjum keppnisdegi og voru Gunnlaugur og félagar fimmtán höggum yfir pari.

Á öðrum hring léku þeir betur og komu í hús á fimm höggum yfir pari sem lið. Gunnlaugur lék sinn hring á 74 höggum, tveimur yfir pari, og bætti sig um þrjú högg á milli hringja. Þrátt fyrir bætinguna fór LSU aðeins upp um eitt sæti og ljóst var að þriðji hringurinn þyrfti að vera frábær, en aðeins fimmtán efstu liðin halda áfram eftir hann.

Á þriðja keppnisdegi varð fljótt ljóst að LSU-menn ætluðu sér ekki að fara heim. Gunnlaugur og félagar fóru af stað af krafti, sóttu hvern fuglinn á fætur öðrum og léku hringinn saman á átján höggum undir pari. Þeir voru ekki aðeins níu höggum betri en næstbesta liðið á hring gærdagsins, heldur bættu þeir einnig besta hring mótsins um tvö högg. Gunnlaugur lék á 69 höggum, þremur undir pari, og fór upp um 44 sæti í einstaklingshluta mótsins. Þá setti liðsfélagi hans, Dan Hayes, nýtt vallarmet þegar hann spilaði á 64 höggum, átta undir pari.
Frábær spilamennska hjá LSU-liðinu, sem fór upp um fimmtán sæti og er nú jafnt í tólfta sæti mótsins. Þeir fá því að spila síðasta hring höggleiksins, sem fer fram í dag, en þaðan komast átta efstu liðin í útsláttarkeppni. Aðeins þrjú högg eru í Duke-háskólann, sem situr í áttunda sæti, og því er allt opið fyrir lokahringinn.

Gunnlaugur hefur leik kl. 17:52 í dag á tíunda teig vallarins, óskum honum og liðsfélögum hans góðs gengis.



