Korpubikarinn 2026 í samvinnu við First Water fór fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 29.-31. maí. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, og Aron Snær Júlíusson, GKG, stóðu uppi sem sigurvegarar eftir frábæra spilamennsku um helgina.
Ragnhildur var jöfn í þriðja sæti fyrir lokahringinn en lék frábært golf á lokadeginum. Hún kom í hús á 65 höggum, sex höggum undir pari, og vann mótið með fimm högga mun. Eftir erfiða byrjun á mótinu lék Ragnhildur síðustu 26 holurnar á ellefu höggum undir pari.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, varð önnur á einu höggi undir pari. Perla fékk flesta fugla allra í kvennaflokknum, alls fjórtán. Hún vann fyrsta mót tímabilsins og styrkti stöðu sína á toppi stigalistans með árangrinum.
Eva Kristinsdóttir, GM, og Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, urðu jafnar í þriðja sæti á tveimur höggum yfir pari.

Í karlaflokki vann Aron Snær mótið eftir harða baráttu við Aron Emil Gunnarsson, GOS, sem varð annar. Aron Emil hafði leitt mótið frá fyrsta hring, en góð spilamennska Arons Snæs á öðrum og þriðja hring gerði gæfumuninn.

Aron Snær hefur nú unnið bæði mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og er með örugga forystu á toppi stigalistans.
Veigar Heiðarsson, GA, varð þriðji á þremur höggum undir pari. Korpubikarinn var hans fyrsta mót á tímabilinu hér heima, en Veigar var nýverið að ljúka sínu fyrsta tímabili í bandaríska háskólagolfinu.

Flottu móti á Korpúlfsstaðavelli er nú lokið og næsta mót á GSÍ mótaröðinni fer fram dagana 6.-7. júní á Þorláksvelli í Þorlákshöfn.



