Korpubikarinn hófst í dag, föstudaginn 29. maí, á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Mótið er annað mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og verða leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum.
Frábær skor sáust á vellinum í dag, en alls léku sautján kylfingar völlinn undir pari.
Smelltu hér fyrir rástíma og stöðuna
Þrír kylfingar eru jafnir í efsta sæti kvennaflokksins eftir fyrsta hring. Það eru þær Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, og Auður Bergrún Snorradóttir, GM. Þær léku hringinn allar á þremur höggum undir pari, og virðast kunna vel við sig á Korpúlfsstaðavelli. Í sama móti á síðasta ári varð Perla önnur, Auður þriðja og Fjóla áttunda.
Auður og Fjóla fengu báðar fjóra fugla og einn skolla í dag, en Perla fékk fimm fugla og tvo skolla. Þær munu leika saman í holli á morgun og verður spennandi að fylgjast með baráttunni um efstu sætin um helgina.

Aron Emil Gunnarsson, GOS, leiðir karlaflokkinn með þremur höggum eftir frábæran hring í dag. Aron kom í hús á 63 höggum, átta undir pari vallarins. Hann var einungis höggi frá vallarmetinu og kórónaði hring sinn með glæsilegum fugli á átjándu holunni.

Á eftir Aroni koma sex heimamenn úr Golfklúbbi Reykjavíkur á þremur, fjórum og fimm höggum undir pari.
Hákon Örn Magnússon er einn í öðru sætinu eftir góða spilamennsku. Hann fékk tvo erni, fimm fugla, tvo skolla og einn tvöfaldan skolla á litríku skorkorti sínu.

Það stefnir allt í frábært mót á Korpúlfsstaðavelli um helgina. Við munum fylgjast vel með á miðlum GSÍ næstu dagana.



