Tímabil íslenskra atvinnu- og afrekskylfinga eru hafin, og keppa þeir víðs vegar um heiminn í vikunni. Í mótavaktinni fylgjumst við með gengi þeirra og gerum upp mót vikunnar.
Nordic Golf League
Cutter & Buck Fjällbacka Open mótið á Nordic Golf League mótaröðinni fór fram dagana 21. til 23. maí í Svíþjóð. Þar voru þeir Sigurður Arnar Garðarsson og Dagbjartur Sigurbrandsson á meðal þátttakenda.
Dagbjartur lék frábært golf í mótinu og lauk leik á sjö höggum undir pari í heildina, jafn í áttunda sæti mótsins. Með þessu jafnar hann sinn næstbesta árangur á tímabilinu, en þetta er í þriðja skiptið sem Íslandsmeistarinn endar jafn í áttunda sæti í sumar.

Dagbjartur lék á 71-67-68 höggum og verður að öllum líkindum á meðal 20 efstu kylfinga stigalistans eftir þetta flotta mót. Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni.
Sigurður Arnar var höggi frá því að ná í gegnum niðurskurð, en hann lék hringi sína á 71-72 höggum og endaði einn yfir pari í heildina.
Let Access
Ragnhildur Kristinsdóttir átti frábært mót á Allegria Ladies Open á LET Access mótaröðinni í Austurríki þar sem hún endaði í öðru sæti. Hún var í toppbaráttunni frá upphafi og komst með árangrinum upp í fjórða sæti stigalistans.
Íslensku kylfingarnir léku allir vel í mótinu, en eftir fyrsta hring voru Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir allar jafnar í öðru sæti. Hulda Clara endaði mótið jöfn í 23. sæti og Andrea jöfn í 42. sæti.
Frábær byrjun á LET Access tímabilinu og verður spennandi að fylgjast með okkar kylfingum þar í sumar.
LET Tour
Guðrún Brá Björgvinsdóttir náði ekki í gegnum niðurskurð á Lalla Meryem Cup mótinu á LET mótaröðinni. Mótið fór fram dagana 21. til 23. maí í Rabat í Marokkó.
Guðrún lék hringi sína á 77-72 höggum og lauk leik á fjórum höggum yfir pari, jöfn í 73. sæti. Hún lék gott golf á öðrum keppnisdegi, fékk tvo fugla og tapaði einungis einu höggi, en varð að lokum tveimur höggum frá því að ná í gegnum niðurskurð.
HotelPlanner Tour
Haraldur Franklín Magnús er jafn í 56. sæti eftir þrjá hringi Danish Golf Challenge mótsins á HotelPlanner Tour mótaröðinni sem fer fram dagana 21. til 24. maí í Odense í Danmörku. Mótið er leikið á Odense Eventyr Golf vellinum sem hefur undanfarin ár verið fastur viðkomustaður mótaraðarinnar.
Haraldur hefur leikið fyrstu þrjá hringina á 70-71-71 höggi og er fjóra undir pari fyrir lokahringinn.




