GSÍ fjölskyldan
Three female golfers pose for a selfie on a golf course during Allegria Ladies Open, with a scoreboard overlaid at the bottom showing scores and names.
Andrea, Ragnhildur og Hulda - myndin var tekin eftir fyrsta hring mótsins
Auglýsing

Ragnhildur Kristinsdóttir, atvinnukylfur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, endaði í öðru sæti Allegria Ladies Open mótsins á LET Access mótaröðinni sem lauk í dag. Mótið fór fram á hinum krefjandi Sudburgenland velli á Allegria Golf Resort svæðinu í Austurríki. Einungis tveir kylfingar léku undir pari í mótinu.

Þetta var annað mót tímabilsins, og voru þrír íslenskir kylfingar á meðal þátttakenda. Ásamt Ragnhildi kepptu þær Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir. Allar náðu þær í gegnum niðurskurð og voru m.a. jafnar í þriðja sæti eftir fyrsta hringinn.

Ragnhildur lék frábært golf í mótinu. Hún lék hringi sína á 68-71-70 höggum og var á meðal efstu kylfinga frá upphafi móts. Eftir litríkan fyrsta hring fékk Ragnhildur sextán pör á öðrum hringnum. Hún var jöfn í öðru sæti fyrir lokahringinn, höggi á eftir hinni þýsku Hanna Tauber.

Ragnhildur lék fyrri níu holur lokahringsins á tveimur höggum yfir pari, en hóf sókn sína að efstu kylfingum strax á tíundu holu. Eftir tvo fugla og örn á fimmtándu holunni var Ragnhildur höggi á eftir Tauber, sem lék gott golf í dag. Tveir skollar komu hjá okkar konu á síðustu þremur holum dagsins, og annað sætið því raunin. Frábær árangur hjá Ragnhildi, sem stefnir hátt í sumar.

Golf scorecard showing holes 1–18 with yards and par; bottom row shows round scores with blue and red highlights on several holes.
Lokahringur Ragnhildar

Hulda Clara endaði jöfn í 23. sæti mótsins á fimm höggum yfir pari í heildina. Hún lék hringi sína á 68-73-74 höggum. Þetta er fyrsta tímabil Huldu sem atvinnukylfingur, en hún hefur hafið ferilinn af krafti.

Andrea lék hringi sína á 68-77-75 höggum og endaði jöfn í 43. sæti mótsins á tíu höggum yfir pari. Samkvæmt tölfræði LET Access reyndust púttin henni dýr á öðrum hring, en árangurinn góður engu að síður.

Hér má sjá úrslit mótsins

Allar hafa þær þrjár hafið tímabilið vel og náð í gegnum niðurskurð í báðum mótunum. Hér má sjá árangur þeirra hingað til:

KylfingurMadaef Ladies OpenAllegria Ladies Open
Ragnhildur Kristinsdóttir42T2
Hulda Clara GestsdóttirT8T23
Andrea BergsdóttirT29T43

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ