GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Dagbjartur Sigurbrandsson, Hlynur Bergsson og Sigurður Arnar Garðarsson eru á meðal keppenda í Nordic Golf League móti sem hefst í Danmörku í dag. Allir eru þeir á meðal 50 efstu kylfinga stigalistans og stefna hátt á mótaröðinni.

Mót vikunnar á Nordic Golf League er Royal Unibrew Championship. Leikið er á Royal Oak vellinum rétt fyrir utan Kolding. Völlurinn er par 72 og yfir 6.400 metra langur. Hann gæti reynst kylfingum krefjandi en er á einstaklega fallegu svæði, líkt og sjá má á mynd hér að neðan.

Aerial view of a lush golf course with greens, fairways, water hazards, and a clubhouse in the corner under a blue sky.
Royal Oak völlurinn

Þremeningarnir hafa allir leikið vel á mótaröðinni hingað til. Dagbjartur er í 31. sæti stigalistans, en hann hefur leikið í níu mótum. Hlynur situr rétt á eftir Íslandsmeistaranum, í 37. sætinu, eftir átta mót. Sigurður Arnar er í 47. sætinu en hefur þó einungis tekið þátt í þremur mótum. Öll voru þau á sama svæðinu í Póllandi í apríl, og varð Sigurður á meðal tíu efstu í tvígang.

Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu.

Hér má fylgjast með stöðu mótsins

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ