Í vetur og vor eignuðumst við einn nýja alþjóðadómara og fjóra nýja landsdómara
Nicholas Anthony Cathcart-Jones sótti TARS (Tournament Administrators and Referees School) námskeið hjá R&A í Skotlandi og lauk „level-3“ prófi. Hann hefur fengið réttindi Alþjóðadómari hjá GSÍ.
Í vetur stóð dómaranefnd fyrir undirbúningsnámskeiði fyrir landsdómarapróf, sem haldið var í þessum mánuði. Alls sóttu 7 námskeiðið þar sem 4 náðu lágmarkseinkunn til að öðlast réttindi landsdómara í golfi.
Þeir sem hlutu réttindi landsdómara eru:
Eyþór Franzson Wechner
Gestur Halldórsson
Leifur Geir Hafsteinsson
Úlfar Gíslason
GSÍ óskar þeim öllum hjartanlega til hamingju með nýju réttindin.
Hér má sjá lista fyrir alþjóða-, lands og héraðsdómara í golf.

