GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Poster announcing Landsmeistarar í golf, 2026, featuring Eva Kristinsdóttir (left) with trophy and Axel Böasson (right) in team gear, smiling.
Frábær byrjun á sumrinu hjá Evu og Axel
Auglýsing

Úrslitakeppni Landsmótsins í golfhermum fór fram laugardaginn 2. maí í Íþróttamiðstöð GKG og reyndist gífurlega spennandi viðburður. Efstu tólf karlarnir og efstu tólf konurnar úr undankeppnum mótsins léku til úrslita, en 268 kylfingar hófu keppni í mótinu. Bráðabana þurfti til að skera úr um sigurvegara í báðum flokkum.

Leikinn var 36 holu höggleikur á Korpúlfsstöðum, en þar verður Íslandsmótið í golfi 2026 haldið í ágúst.

Eftir fyrri 18 holurnar voru það Skúli Gunnar Ágústsson og Pamela Ósk Hjaltadóttir sem leiddu mótið. Skúli lék hringinn á 63 höggum og var með eins höggs forystu á Sigurð Arnar Garðarsson sem lék á 64. Pamela lék á 68 höggum, eða fjórum undir pari, og var með tveggja högga forystu á þrjá kylfinga.

Seinni átján holurnar voru sýndar í beinni útsendingu á bæði Stöð 2 Sport og Facebook síðu GSÍ. Mikil vinna er lögð í mótið og gaman að sjá afrakstur þess og spilamennsku þeirra flottu kylfinga sem við eigum.

Seinni hringurinn spilaðist erfiðari en sá fyrri, en vindurinn í golfhermunum var aukinn milli hringja. Þrátt fyrir það bættu tíu kylfingar skor sitt á milli hringja.

Þegar komið var á síðustu holuna voru þrjár jafnar í efsta sæti kvennaflokksins, Ragnhildur Kristinsdóttir, Eva Kristinsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir. Eftir að hafa leitt mótið lengst af fékk Pamela skolla á átjándu holunni eftir þrípútt. Hinar tvær fengu par, og þurftu Ragnhildur og Eva því að leika bráðabana um sigur í mótinu.

Fyrsta holan var leikin aftur, sem er par 5. Þar fékk Eva góðan fugl á meðan Ragnhildur fékk par, og Eva Kristinsdóttir því Landsmeistari í golfhermum 2026.

Úrslit kvenna:

Leaderboard showing top Icelandic players: ranks 1–12 with names and score changes, each row including Iceland flag and total score column.
Skor kvenna

Í karlaflokki var einnig mikil spenna á seinni hringnum. Þegar nokkrar holur voru eftir voru fjórir kylfingar jafnir á tólf höggum undir pari: Axel Bóasson, Kristófer Orri Þórðarson, Sigurður Arnar Garðarsson og Skúli Gunnar Ágústsson. Skúli sótti fjóra fugla í röð á holum 10-13, en skolli á fjórtándu holu reyndist honum dýrkeyptur.

Sigurður Arnar sló 340 metra teighögg inná flöt á átjándu holunni og fékk frábæran fugl til að jafna við Axel og Kristófer á þrettán undir pari. Kristófer átti þriggja metra pútt til að sigra mótið, en rétt missti og þriggja manna bráðabani því raunin.

Aftur var haldið á fyrstu holuna, þar sem Axel og Kristófer fengu báðir par. Sigurður átti 3.5 metra pútt fyrir sigri í mótinu en missti það, svo allir héldu þeir áfram á aðra holuna.

Önnur holan er einnig par 5 og áttu allir kylfingarnir góðan möguleika á fugli. Axel tryggði sinn með því að vippa inn í hringinn, en Kristófer og Sigurður þurftu báðir að pútta fyrir fugli. Ekki duttu púttin, og Axel Bóasson því Landsmeistari í golfhermum 2026.

Úrslit karla:

Leaderboard of 12 Icelandic players with flags, ranks, names, and score changes.
Skor karla

Sigurvegarar mótsins fengu að launum 130.000kr og nafn sitt á farandbikar Landsmótsins. Annað sætið vann sér inn 50.000kr og þriðja sætið 30.000kr.

Glæsilegu móti er hér með lokið. Metfjöldi kylfinga tók þátt í mótinu í ár sem helst í hendur við þær auknu vinsældir sem golfið og golfhermar hafa notið á síðustu árum. Útsending og umgjörð var til fyrirmyndar hjá GKG og RÍSÍ, og verður betri með hverju árinu.

Sérstakar þakkir fara til Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar sem hélt mótið, og allra þeirra sem komu að framkvæmd þess.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ