Hulda Clara Gestsdóttir, Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir náðu allar í gegnum niðurskurð á Madaëf Golfs Ladies Open móti LET Access. Mótið fer fram í Marokkó dagana 12.-14. apríl og er það fyrsta á mótaröðinni í ár.
Hulda Clara lék fyrsta hringinn á pari vallarins, 72 höggum, og var jöfn í ellefta sæti mótsins. Hún lék einnig vel á öðrum hringnum og lauk leik á 73 höggum. Hulda fékk tvo skolla á fyrstu sex holunum og lék síðustu tólf holurnar einn undir pari. Par 5 holurnar á seinni níu hafa reynst henni vel, en þar hefur hún fengið fjóra fugla af fjórum mögulegum.
Hulda situr jöfn í þrettánda sæti mótsins fyrir lokahringinn ásamt átta öðrum kylfingum. Stutt er í efstu tíu sætin, sem væri frábær árangur í hennar fyrsta móti á LET Access.

Andrea Bergsdóttir og Ragnhildur ‘Ragga’ Kristinsdóttir eru jafnar í 44. sætinu á sjö höggum yfir pari eftir hringina tvo.
Andrea lék fyrsta hringinn á 79 höggum og var jöfn í 71. sæti mótsins. Annan hringinn lék hún mjög vel, kom í hús á parinu og flaug upp stöðutöfluna. Hún fékk þar fimm fugla og púttaði einungis 27 sinnum á hringnum. Á fyrri níu holunum einpúttaði Andrea sjö holur í röð, sem verður að teljast mikið afrek.

Ragga lék fyrsta hringinn á 77 höggum, fimm yfir pari vallarins og var jöfn í 50. sætinu. Annan hringinn lék hún betur og kom í hús á 74 höggum. Skorkortið var litríkt, en Ragga fékk einn örn, fjóra fugla og átta skolla á hringnum.

Það verður spennandi að fylgjast með lokasprettinum á þessu fyrsta móti tímabilsins, en hér má skoða stöðu og úrslit mótsins.
