Golfsumarið er að hefjast og þegar hafa nokkrir golfvellir opnað á sumarflatir. Á næstu dögum og vikum má búast við að fleiri golfvellir fylgi í kjölfarið eftir því sem aðstæður leyfa.
Á rastimar.golf.is er hægt að nálgast yfirlit yfir opnun golfvalla um land allt, þar sem fram kemur hvaða vellir eru opnir og áætlaður opnunartími annarra.
👉 https://rastimar.golf.is/vellir#vellir
Athygli er vakin á því að opnunartímar eru áætlaðir og geta breyst með stuttum fyrirvara, meðal annars vegna veðurs og ástands valla.
