GSÍ fjölskyldan
/

Deildu:

Auglýsing

Íslandsmótið í holukeppni 2025 í kvennaflokki fer fram á Hlíðavelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar dagana 20.-23. júní.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í höggleiknum:

Fyrirkomulag mótsins er 36 holu höggleikur, þar sem 16 efstu kylfingarnir komast áfram í holukeppnina. Þaðan hefst útsláttarkeppni sem lýkur mánudaginn 23. júní, þar sem Íslandsmeistari kvenna í holukeppni er krýndur.

Dagskrá mótsins:

  • Föstudagur 20. júní – 36 holu höggleikur
  • Laugardagur 21. júní – frí
  • Sunnudagur 22. júní – 16 og 8 manna úrslit
  • Mánudagur 23. júní – undanúrslit og úrslit

Keppendur eru alls 50 og koma þeir frá 8 mismunandi klúbbum. Flestir keppendur eru frá GKG og GM, eða 12 talsins. Golfklúbbur Reykjavíkur er með 11 keppendur og Golfklúbburinn Keilir er með 7.

Á keppendalistanum er m.a. efsta kona stigalistans, Heiðrún Anna Hlynsdóttir, sem hefur unnið bæði mótin sem hún hefur leikið í á tímabilinu. Einnig eru Auður Bergrún, Bryndís Eva og Eva Kristinsdóttir á meðal keppenda. Þær mæta ferskar í mótið úr sterku boðsmóti Annika Sörenstam sem fór fram 17.-19. júní.

KlúbburFjöldi
1Golfklúbbur Akureyrar4
2Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar12
3Golfklúbbur Mosfellsbæjar12
4Golfklúbbur Reykjavíkur11
5Golfklúbbur Selfoss2
6Golfklúbbur Suðurnesja1
7Golfklúbburinn Keilir7
8Golfklúbburinn Setberg1

Meðalforgjöfin í mótinu er 2.67, forgjafarlægsti kylfingurinn er með +2.1 og sá forgjafarhæsti með 7.4.

Íslandsmeistarar í holukeppni í kvennaflokki frá upphafi:

Alls hafa 19 leikmenn sigrað í kvennaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni frá árinu 1988 þegar mótið fór fyrst fram.

Ragnhildur Sigurðardóttir hefur sigrað oftast eða 6 sinnum alls (1990, 1993, 1997, 2000, 2001 og 2005), Ólöf María Jónsdóttirer með 5 titla alls (1995, 1996, 1998, 1999 og 2004), Karen Sævarsdóttir er með 4 titla alls. (1988,1991, 1992 og 1994). Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur sigrað þrívegis (2011, 2013 og 2020). Fjórir leikmenn hafa sigrað tvívegis: Þórdís Geirsdóttir (1989 og 2007), Signý Arnórsdóttir (2009 og 2012), Guðrún Brá Björgvinsdóttir (2017 og 2021) og Saga Traustadóttir (2019 og 2022). Saga er sú eina sem hefur skilað þessum titli til tveggja golfklúbba, en hún var Í GR árið 2019 en hún hefur verið í GKG undanfarin ár. Anna Júlía Ólafsdóttir, ríkjandi meistari, er ekki á meðal keppenda í ár og mun því ekki verja titil sinn í mótinu.

ÁrNafnKlúbburFjöldi titla
1988Karen SævarsdóttirGS1
1989Þórdís GeirsdóttirGK1
1990Ragnhildur SigurðardóttirGR1
1991Karen SævarsdóttirGS2
1992Karen SævarsdóttirGS3
1993Ragnhildur SigurðardóttirGR2
1994Karen SævarsdóttirGS4
1995Ólöf María JónsdóttirGK1
1996Ólöf María JónsdóttirGK2
1997Ragnhildur SigurðardóttirGR3
1998Ólöf María JónsdóttirGK3
1999Ólöf María JónsdóttirGK4
2000Ragnhildur SigurðardóttirGR4
2001Ragnhildur SigurðardóttirGR5
2002Herborg ArnarsdóttirGR1
2003Helga Rut SvanbergsdóttirGM (GKj)1
2004Ólöf María JónsdóttirGK5
2005Ragnhildur SigurðardóttirGR5
2006Anna Lísa JóhannsdóttirGR1
2007Þórdís GeirsdóttirGK1
2008Ásta Birna MagnúsdóttirGK1
2009Signý ArnórsdóttirGK1
2010Valdís Þóra JónsdóttirGL1
2011Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR1
2012Signý ArnórsdóttirGK2
2013Ólafía Þórunn KristinsdóttirGR2
2014Tinna JóhannsdóttirGK1
2015Heiða GuðnadóttirGM2
2016Berglind BjörnsdóttirGR1
2017Guðrún Brá BjörgvinsdóttirGK1
2018Ragnhildur KristinsdóttirGR1
2019Saga TraustadóttirGR1
2020ÓIafía Þórunn KristinsdóttirGR3
2021Guðrún Brá BjörgvinsdóttirGK2
2022Saga TraustadóttirGKG2
2023Perla Sól SigurbrandsdóttirGR1
2024Anna Júlía ÓlafsdóttirGKG1

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ