Golfsamband Íslands (GSÍ) og Michelsen ehf. hafa undirritað samstarfssamning til 5 ára sem felur í sér að Michelsen verði einn af styrktaraðilum sambandsins. Samstarfið snýr að eflingu golfíþróttarinnar á Íslandi og styður sérstaklega við verkefni tengd mótahaldi GSÍ.
Báðir aðilar lýsa yfir ánægju með samkomulagið og hlakka til farsæls samstarfs á komandi árum.
„Við hjá Golfsambandi Íslands erum virkilega ánægð með samstarfssamning okkar við Michelsen og það ríkir tilhlökkun hjá okkur um að starfa með þessum öfluga samstarfsaðila að uppbyggingu golfíþróttarinnar.“ sagði Brynjar Eldon Geirsson framkvæmdastjóri GSÍ.

Michelsen 1909 er elsta úra- og skartgripaverslun Íslands og býður upp á landsins mesta úrval af vönduðum úrum og skartgripum. Fyrirtækið hefur alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldu og var stofnað á Sauðárkróki þann 1. júlí árið 1909 af J. Frank Michelsen.
„Michelsen 1909 er heiður að vera einn af styrktaraðilum Golfsambandsins og þar með styðja enn frekar við jákvæða uppbyggingu samfélagsins er varðar útiveru, hreyfingu og almenna hreysti. Úraheimurinn, sem er okkar vettvangur, hefur í áratugi verið tengdur golfíþróttinni og þá sérstaklega okkar erlendu samstarfsaðilar á borð við Rolex og TAG Heuer og því lá beint við að tengja okkur, og þau merki sem við erum í forsvari fyrir á Íslandi, við hina sívinsælu golfíþrótt og hið göfuga starf sem fer fram innan Golfsambandsins.“ Sagði Róbert Michelsen, úrsmiður og framkvæmdastjóri Michelsen 1909.