Auglýsing

Námskeið fyrir íþróttakennara og annað áhugafólk um golfkennslu í skólum verður haldið í Vættaskóla í Grafarvogi dagana 12. og 13. nóvember nk. Námskeiðið er í boði Golfsambands Íslands og stendur frá 16-18.30 báða dagana. Leiðbeinandi verður Magnús Birgisson PGA golfkennari og SNAG master leiðbeinandi.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 514-4050 og info@golf.is:

Meira um námskeiðið:
Kennt er með Starting New At Golf (SNAG) sem er margverðlaunuð leið við golfkennslu og gerir golfkennslu og golfnámið auðveldara og skemmtilegra.

SNAG golf er hægt að stunda bæði úti og inni og henta íþróttasalir og skólalóðir einstaklega vel fyrir kennsluna. Hægt er að kenna nemendum á öllum aldri frá ungum börnum til fullorðinna og fatlaðra óháð líkamlegri getu. Á námskeiðinu er kennt að leiðbeina byrjendum í golfi með SNAG golf kerfinu.

Grunnatriðin í golfi eru kennd á einfaldan og skemmtilegan hátt í gegnum leik. Þátttakendur fá kennsluhandbók og æfingahefti með sér heim til að nota í eigin kennslu í framhaldinu.

Skráning og nánari upplýsingar í síma 514-4050 og info@golf.is:

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ