Auglýsing

WAGR-Mót fer fram á Hvaleyrarvelli 24.-26. september en Golfklúbburinn Keilir er framkvæmdaraðili mótsins. Leikfyrirkomulag er höggleikur í flokki karla og kvenna, alls 54 holur.

Leiknar eru 18 holur fyrsta mótsdag og 18 holur á mótsdegi tvö og þrjú. Keppt er samkvæmt móta- og keppendareglum GSÍ. Við áskiljum okkur rétt til þess að sameina leikdaga og leika 36 holur ef aðstæður vegna veðurs hamla leik.

Smelltu hér fyrir rástíma, skor og úrslit:

Rástímar og ráshópar

Á fyrsta keppnisdegi raðar mótsstjórn í ráshópa en síðan verður raðað út eftir skori. 

Á fyrsta hring verður ræst út frá kl. 14:00, annan hring kl. 8:00 og þriðja hring frá kl. 8:00. Ath. að þessir tímar eru til viðmiðunar og geta breyst.

Þátttökuréttur

Hámarksfjöldi kylfinga í mótið er 39. Þátttökurétt hafa atvinnu og áhugamenn. Í karlaflokki er hámarksforgjöf 5,5 og í kvennaflokki 8,5 og skulu keppendur vera meðlimir í golfklúbbi innan GSÍ. Ef skráningar eru fleiri en hámarksfjöldinn falla niður skráningar þeirra leikmanna sem næstir eru forgjafarmörkum síns kyns. Þó skulu að lágmarki níu leikmenn eiga rétt á þátttöku af hvoru kyni. Ef tveir eða fleiri kylfingar eru jafnlangt frá forgjafarmörkum síns kyns ræður hlutkesti því hverjir fá þátttökurétt. Ef fjöldi kylfinga sem fá þátttökurétt af hvoru kyni er ekki heilt margfeldi af þremur er hámarksfjöldi leikmanna aukinn svo að þrír keppendur verði í hverjum ráshópi.

Karlar leika af hvítum teigum og konur af bláum teigum.

Keppendur fá æfingabolta fyrir hring án endurgjalds á mótsdögum.

Verðlaun

Veitt verða verðlaun frá fyrir 1. – 3. sæti í flokki karla og kvenna.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ