/

Deildu:

Auglýsing

Föstudaginn 19. september nk. verður haldið SNAG leiðbeinendanámskeið í Hraunkoti í Keili í Hafnarfirði. Námskeiðið gefur alþjóðleg réttindi á fyrsta stigi SNAG golfkennslu. Námskeiðið er opið golfkennurum, íþróttakennurum, þjálfurum og öllu áhugafólki um útbreiðslu golfíþróttarinnar. Einnig eru þeir velkomnir sem vilja nýta námskeiðið til að auka eigin golfþekkingu eða kynnast nýjum skemmtilegum hlutum í golfheiminum.

SNAG þýðir Starting New At Golf og berst nú hratt um heiminn. SNAG hefur aukið möguleika á útbreiðslu golfsins til muna því að með SNAG búnaði og kennslufræði er hægt að gera golfnámið og golfkennsluna skemmtilegri og auðveldari. SNAG golf er hægt að stunda bæði úti og inni og henta íþróttasalir og skólalóðir einstaklega vel fyrir kennsluna. Æ fleiri kennarar og skólar á mismunandi skólastigum vilja bjóða nemendum sínum að læra undirstöðuatriðin í golfi með SNAG kennslufræðinni í íþróttatímum í bland við aðrar íþróttir eða sem sérstakt valnámskeið. Um 2000 manns kynntust golfinu í gegnum SNAG búnaðinn og kennslufræðina hér á landi á síðasta ári og hefur sá fjöldi margfaldast það sem af er þessu ári.

Starting New At Golf – Fyrsta stig

Námskeiðið er fyrsti hluti af SNAG kennslu-og þjálfunarkerfinu og veitir réttindi sem fyrsta stigs SNAG golf leiðbeinandi.

Leiðbeinandi: Magnús Birgisson PGA, SNAG Master kennari

Staðsetning: Hraunkot, Golfklúbbnum Keili, Steinholti 1, 220 Hafnarfirði

Tímasetning: 19. september 2014. Kl. 9.00-15.00

Verð: 12.500 fyrir námskeiðið, SNAG handbók, morgun-og hádegishressingu.

Skráning á námskeiðið og nánari upplýsingar veittar í gegnum netfangið ingibjorg@hissa.is og í síma 775-0660 / 898-7250.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ